Búnaðarrit - 01.01.1929, Page 247
BÚNAÐARRIT
241
en annars var nokkur ágreiningur í nefndinni um það,
hvar dýralæknisins væri mest þörf og hvar mest not
yrðu að honum.
F.ftirfylgjandi tillaga var samþ. af meiri hluta nefndar-
innar:
„Búnaðarþingið lítur svo á, að öll sanngirni mæli
með því, að dýralæknirinn í Yestfirðingafjórðungi
sitji í Stykkishólmi, eins og áður var, eða sem næst
miðbiki umdæmisins, meðan skifting umdæmisins
er svo háttað, sem nú er“.
Feld með 7 : 4 atkv. að viðhöfðu nafnakalli, og
sögðu já: Guðmundur Þorbjarnarson, Kristinn Guð-
laugsson, Magnús Friðriksson, Sigurður E. Hlíðar.
Nei sögðu: Björn Hallsson, Halldór Yilhjálmsson,
Jakob H. Líndal, Jón Hannesson, Jón H. Þorbergs-
son, Ólafur Jónsson, Páll Stefánsson.
41. TJm hœkkun styrks til Hölmgeirs Jenssonar
dýrálæknis.
(Fskj.: Nr. 260. Erindi frá etjórn Búnaðarsambands Veet-
fjarða um að Búnaðarþingið beiti ejer fyrir hœkkun á styrk til
Hólmgeire JensBonar).
Allsherjarnefnd hafði málið til meðferðar. Framsögu-
maður Magnús Friðriksson lagði fram svohlj. tillögu
nefndarinnar, á þskj. 387:
„Búnaðarþingið mælir eindregið með því, að Al-
þingi hækki styrkinn til Hólmgeirs Jenssonar á
Þórustöðum í Önundarfirði, upp í kr. 1200.00 á
ári, svo að hann geti gefið sig sem mest við dýra-
lækningum á Vestfjörðum, þar sem engum full-
lærðum dýralækni er á að skipa á þessum slóðum,
en hr. Hólmgeir Jensson heflr stundað dýralækn-
ingar á Vestfjörðum um 30 ára skeið og heppnast
mjög vel“.
Samþ. með 9 samhlj. atkv.
16