Nýja stúdentablaðið - 01.02.1947, Side 9

Nýja stúdentablaðið - 01.02.1947, Side 9
r IJALLDÓR SIGURÐSSON, stud. mág.: Bergmál dagsins Gránar af morgni, götuljósin blakta, grújir reikur ifir nœsta þaki. Af breiSu strœti berst mér hjólsins kliður — bergmálið aj dagsins fótataki — Og eins og elfa, er föst í farveg sínum falli í liafið, menn til vinnu ganga. í verksmiðjur sumir, aðrir niður á eiri, og aðrir halda í búðir til að pranga, sem ótal hjól, er altaf sama hringinn um öxul sinn í ráðaleysi ganga. Og frjálsir menn þar jalla í auðsins hlekki, fjötraðir í baráttu við skortinn. Já, í landi voru eru allir jrjálsir, þótt undarlegt það raunar teljast megi, að sumra bíður altaf einbert stritið, aur og meira grjól á hverjum degi. Og ánœgðir menn, sem eiga blöðin sjálfir irkja þar lof um frelsi tíma vorra. Og dagur líður. Altaf iðar gatan af öllum þeim, sem koma og fara í bœinn. Og þannig liefur líjið lengi gengið við litla götu í borginni við sœinii. Menn farast hjá, og enginn þekkir annan. Sem eiðimörk er gatan full af mönnum. Svo keinur kvöld, og eins og elfa falli í úlhaf sitt, menn draga sig til baka af vettvang dagsins — orustunni urn auðinn. Þeir auðnulausu fram á nœtur vaka. En engimi þarf hér annarra að gæta, því einir menn í heiminn koma og — fara. Gatan er mannlaus, götuljósker blakta, grœtur regnið hljótt á dimmu þaki, og inn um gluggann gustar kaldur vindur — glórulaus nóttin dilst að húsabaki. Með lirolli gríp ég pappírsörlc og penna og pára kvæði -— um stjörnurnar og mánann. Dagblöð bæjarins skapa ekki einungis stjórn- málaskoðanir manna að verulegu leiti, helduj' eiga þau og drjúgan þátt í því að skapa daglegt mál manna. Er því augljóst, að þar verða þau að vera góð firirmind. Hjá þeim öllum er pottjar brotinn í því efni. Sumir kennarar hafa lesið kafla úr þeim með nemendum sínum til að sína þeim, hvernig þeir megi ekki rita. Sá blaðamaður, sem frægastur mun vera firir ambögur og vesalan rithátt, er Víkverji hjá Morgunblaðinu. Það er auðsætt, að þeir kaflar dagblaðanna, sem eiga að teljast utan afmarkaðs stjórnmálasviðs og eru um dagleg hugðarefni fólks, verða að vera ritaðir á léttu, en kjarnirtu og skap- andi máli, ef vel á að vera. Þangað á að vera hægt að sækja firirmindir að góðu og listrænu máli, svoað fólk læri að klæða hugsanir sínar í fagran búning. I framtíðinni verður málfar blaðanna tekið hér til athugunar. First athugum við smáletursgreinarnar, þvíað ætlandi er, að þær séu vinsælasta lestrarefni fólks af því, sem blöðin hafa að bjóða. Við birjum á víðlesnasta blaðinu, Morgunblaðinu, og birtum hér nokkrar athugasemdir við mál Víkverja. Ég fékk mér Mbl. dagana 10. jan.—16. jan. og las kaflana eftir Víkverja, þá er hann nefnir: Úr daglega lífinu —, til að athuga málfar hans um þennan viku- tíma. Hér fara á eftir nokkrar þeirra misþirminga móðurmálsins, sem mér fanst vera tiltakanlegastar. Breitingar á letri og stafsetningu hef ég gert. Föstud. 10. jan.: „Þessir .... flutningar mundu ef til vill ekki borga sig til að birja með“. Danskt orðaval er þetta (til at begynde med). — Þar er einnig tvisvar nefndur norðurpóll, en íslenska orð- inu heimskaut (norðurskaut) enginn sómi síndur. Skilt er þó að geta þess, að í söinu grein talar Vík- verji ekki um pólarsirkil, lieldur heimskautsbaug. — S. d.: „í þessu sambandi geta jafnvel hinir fáfróð- NÍJA STÚDENTABLAÐIÐ 7

x

Nýja stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.