Hlín - 01.01.1925, Qupperneq 13
Hlín
11
fjelagssvæðinu og meiri og betri þátttöku fulltrúa á aðal-
fundum S. N. K., viljum vjer að nýju minna á stofnun
sýslusambanda og jafnframt hvetja fjelögin til að styðja
og efla þau sem til eru. Pað er skiljanlegt að fjelags-
deildir innan einnar og sömu sýslu eiga hægra með að
hittast og starfa saman að ýmsum áhugamálum innan
hjeraðs en fjórðungs-sambandið. Þá mun það heldur
aldrei bregðast að a. m. k. 2 fulltrúar verða sendir á að-
alfund úr hverri sýslu. Þeir ættu að fundinum loknum að
semja ítarlega skýrslu frá fundinum og Iáta hana berast
milli fjelagsdeildanna, svo engin deild fari á mis við Ijós-
ar fregnir af fundinum.
Umræðuefnin á fundi Sambandsins á Akureyri á kom-
andi sumri verða að mestu leyti hin sömu og að undan-
förnu (fjelagsdeildirnar geta lagt fram tillögur um ný mál,
ef þær óska). Þau mál sem S. N; K. hefir tekið á stefnu-
skrá sína eru svo margbrotin, að óhætt mun að fullyrða,
að sú kynslóð, sem nú lifir, hefir þar nóg viðfangsefni
— fundi og ársrit þarf ekki þess vegna að skorta til-
breytni, að þar sjeu ekki næg umræðuefni. — (Nýkomin
25 ára skýrsla frá norsku kvenfjelaga-sambandi, sem hefir
um 400 fjelagsdeildir með um 70 þúSi fjelögum, hefir
heilbrigðismál þjóðarinnar ein á dagskrá, og þykir þó
starfsémi þess ekki vera einhliða.) ....
Að endingu viljum vjer að nýju vekja athygli kvenna í
S. N. K. á því, hvílík nauðsyn beri til, að þær hafi hönd
i bagga með um fræðslumál barna og unglinga í heima-
högum sínum, að þær kjósi konur í skóla- og fræðslu-
nefndir, þar sem þær eru til vel hæfar o. s. frv.