Hlín - 01.01.1925, Page 40
38
Hltn
föld er sú aðferð, að stanga í gegnum kjöl árgangsins
með 2 — 3 cm. bili milli spora niður úr í gegn, og þarf
að stinga fyrir með al. Betra er að leggja Ijereft yfir kjöl-
inn undir stangið, og sje ennfremur iagður tvöfaldur um-
búðapappír framan og aftan á og svo límdur saman, er
kápan komin. Gott er að reka fyrst nagla í gegnum kjöl-
inn á 2 — 3 stöðum til að halda blöðunum saman, meðan
saumurinn er að komast áleiðis. Enn má komast af með
neglingu eingöngu, og er það allra fljótlegast. Ef naglinn
naer ekki alveg í gegn, svo beygður verði útaf oddurinn,
skal reka ánnan frá hinni hliðinni, en sem skemst frá
þeim fyrri.
E. P.
Námskeiðin í Vík í Mýrdal. (V.-Skaftafellssýslu.)
Síðastliðin 3 ár hafa verið haldin handavinnunámskeið
fyrir stúlkur hjer í Vík. — Tildrögin til þessarar handa-
vinnukenslu voru þau, að Halldóra Bjarnadóttir kenslu-
kona var hjer á ferð sumarið 1922 og hjelt fyrirlestra um
heimilisiðnað, og fyrir hvatningu frá henni, rjeðist Kven-
fjelag Hvammshrepps í að gangast fyrir því, að námskeið
þessi kæmust á hjer. — All-margir örðugleikar voru þó
á því í fyrstu, en sjerstaklega vantaði húsnæði. — Brátt
rættist þó vel fram úr því, því forstöðumaður sláturfje-
lagsins hjer, herra Lárus Helgason á Kirkjubæjarklaustri,
sýndi þann velvilja og skilning á þessari viðleitni kven-
fjelagsins, að Ijá skrifstofur sláturfjelagsins fyrir kenslu-
stofur, og það án endurgjalds. — Hefir kenslan farið þar
fram á hverjum vetri siðan.
Fyrsta námskeiðið byrjaði 20. febrúar 1923. Kenslukona
var þá ungfrú Snjólaug Jóhannsdóttir, er átti heima í
Reykjavík. Útvegaði Halldóra hana, og var okkur á marg-
an hátt hjálpleg með undirbúninginn. Sóttu námskeið
þetta 12 stúlkur, og gekk það ágætlega. — En þótt við