Hlín - 01.01.1925, Qupperneq 44
42 Hlln
4 stk. krossvefnaður, 4 stk. glit, 4 stk. hálfflos, 2 stk.
hálfglit. 38 stykki.
II. Saumar. 19 kjólar, 23 buxur, 8 kápur, ö skyrtur,
5 dagtreyjur, 9 flibbar, 4 vesti, 4 svuntur, 3 drengjaföt,
2 pils, 2 kjóltreyjur, 2 jakkar, 1 upphlutur, 1 peysa.
89 flíkur.
III. Smíðar. 9 borð (lítil skrifborð með tveimur skúff-
um), 1 stórt skrifborð, 1 stórt borðstofuborð, 3 þvotta-
borð (eitt með skáp), 2 blómaborð, 1 saumaborð, 2
kommóður, 4 ferðakistur, 12 koffort, 1 kistill, 1 púlt, 4
rúmstæði, 4 stólar, 1 bekkur, 2 orgelstólar, 2 hefilbekkir,
4 stórir bókaskápar með vængjahurðum, 1 bókahilla, 1
bókbandspressa, 50 hrifuhausar, 32 hrifusköft, 4 orf, 2
sleðakjálkar, 5 kaffibakkar, 5 myndarammar. 154 munir.
Unnið var að jafnaði 7 klst. á dag. Það sem eftir var
dagsins gekk a. n. 1. til heimilisstarfa, sem nemendur
önnuðust að mestu. Var ráðin ein stúlkan til að annast
matreiðslu á námskeiðinu, en að öðru Ieyti önnuðust
nemendur matreiðsluna, þjónustubrögð, ræsting á húsinu
og aðdrætti. — Kvöldstundirnar voru oft notaðar til leikja,
úti eða inni, stundum voru sagðar sögur eða lesið upp.
— Vegna veikinda var þó altaf nokkur skuggi yfir heim-
ilislífinu. ! byrjun námskeiðsins veiktist einn nemandinn
mjög hættulega af botnlangabólgu, síðari mánuðinn kom
upp mænuveiki á námskeiðinu, þó væg. Þessa gætti þó
minna vegna þess yndis, sem allir höfðu af starfinu og
náminu, og svo hver af öðrum. — Kenslugjald var 40
kr. fyrir hvern nemanda. — Gripina sem gerðir voru áttu
nemendur sjálfir, nema nokkura, sem smíðaðir voru fyrir
skólann. — Sýning var og samkoma að námskeiðinu
loknu, 30. mars. Sýningardaginn var foraðsveður, en þó
kom margt manna að sjá munina.
Laugum 14. apríl 1925.
Helga Kristjánsdóttir.
Arnór Sigurjónsson.