Hlín - 01.01.1925, Blaðsíða 58
56
Hlln
Það eru þrjár tegundir íslenskra næringarefna, sem
þyrftu að verða verulega eftirspurðar og komast inn á
hvert einasta heimili; jeg vona að jeg hneyksli engan, það
eru: fjallagrös, hafsíld og þorskalýsi! Mætti vel vera að
það verkaði sem nokkurskonar gagnrök eða hemill gegn
þeirri óhreinsuðu Parísarmenningu, sem nú rennur óð-
fluga, á silkisokkum og háum hælum, eins og flóðalda
um endilangt ísland, eldri kynslóðinni til ásteytingar, en
þeirri yngri til óbætanlegs tjóns.
ísland fyrir (slendinga, minnumst þess.
Pórunn Richardsdóttir.
Höfn í Borgarfjarðarsýslu.
Hjúkrunarnám.
Engum getur blandast hugur um það, að hjúkrunar-
mál þjóðar vorrar eru enn mjög skamt á veg komin. Ef
við tökum nágrannaþjóðirnar til samanburðar, er ekki
laust við að við megum bera bleika kinn vegna þess,
hve sáralítið hefir verið gert hjer heima til að efla og
glæða áhuga ungra kvenna fyrir því að gerast hjúkrunar-.
konur og á þann hátt vinna þjóðinni ómetanlegt gagn,
bæði við bein hjúkrunarstörf og eins með því að fyrir-
byggja útbreiðslu sjúkdóma.
Allar mentaðar þjóðir hafa stofnað með sjer hjúkrunar-
fjelög, er starfa að því meðal annars að útbreiða þekkingu
fólks á að nota lærðar hjúkrunarkonur til allra hjúkrunar-
starfa, hvort heldur um spitala eða heimili er að ræða,
og yfir höfuð á öllum þeim sviðum, er varða heilsufar
þjóðanna (t. d. skóla, verksmiðjur o. s. frv.).
Hjer á landi hafa hjúkrunarkonur einnig stofnað með