Hlín - 01.01.1925, Qupperneq 60
58
Hlin
ætlaðar til hjúkrunar í sveitum og á sjúkraskýlum í minni
kauptúnum. Fjelagið hefir orðíð að gera þetta sökum
þess, að það virðist vera ómögulegt að fá sveitirnar til
að borga það kaup, er hjúkrunarkonur með hinu kostn-
aðarsama 3ja ára námi eiga heimtingu á að fá. — Fje-
lagið hefir reynt af fremsta megni að gera nám þetta svo
vel úr garði sem unt er, IV2 ár vinna nemarnir á sjúkra-
húsum, og af þeim tíma minst 6 mánuði á Akureyrar-
eða Ísafjarðarspítala, til þess að þeir geti lært hjúkrun
uppskurðarsjúklinga. Að því loknu vinna þær við hjúkr-
unarfjelagið »Líkn« í Rvík, bæði að heimilishjúkrun og
einnig við berklavarnarstöð fjelagsins. Allan námstímann
verða þær auðvitað að vera undir handleiðslu hjúkrunar-
kvenna með fullu 3ja ára námi. Fyrir báða flokka gildir
sú regla að fyrstu 6 mánuðirnir eru til reynslu, hvort
nem. hafi hæfileika til starfans.* Heyrst hafa raddir og
þær eigi allfáar á þá leið: »En hvernig getur ykkur dottið
í hug að fátækar sveitir geti launað hjúkrunarkonum með
svo löngu námi? Rjóð vor er svo fátæk og landið svo
strjálbygt, að það er ómögulegt að koma slíku í fram-
kvæmd, og geti maður fengið góðar stúlkur með 1 árs
hjúkrunarnámi og svo lágu kaupi sem unt er, megum
við sannarlega vera þakklát.« — Jeg hefi héyrt margar
slíkar viðbárur og mjer verður jafnan gramt í geði er jeg
heyri þær. — Hjúkrunarstarfið er svo erfitt starf, það
erfiðasta sem nokkur kona getur tekist á hendur, svo
umfangsmikið og margbreytilegt, að næsta óskiljanlegt er
að menn skuli láta sjer nægja það lægsta og minsta
þegar um meðferð á sál og líkama sjúklings er að ræða.
— Hjúkrunarkona, sem hefir á hendi daglega hjúkrun
* Hjúkrunarnemarnir fá þetta kaup yfir námstimann: 30.00 á mán-
uði, alt frítt og hjúkrunarkjóla hjer á landi. — Alt að 100.00 á
mánuði, alt frítt og kjóla erlendis. — Ferðirnar til Rvíkur fá nem-
arnir ókeypis, en Eimskipafjelag íslands hefir góðfúslega veitt
nemendum ókeypis ferð til útlanda.