Sunna - 01.03.1933, Blaðsíða 26
186
S U N N A
(Sýnishorn af rilgerðum
barna).
íslenzka vikan.
Merki Jslenzku vikunnar".
Ullarsokkar.
Margt þarf að gera áður en sokkurinn er tilbúinn.
Fyrst er ullin tekin af kindinni, svo er hún þvegin. Svo er
kún kembd og spunnin, og síðast er prjónað úr bandinu, sem
á þennan hátt verður til.
Áður fyr var allt prjónað í höndunum, en nú er farið að
nota vélar til þess, og er það mjög gott, því að það sparar
bæði tíma og erfiði.
Sokkarnir eru mjög mismunandi. Sumir eru mjög þykkir
03 stórir, og eru kallaðir togsokkar og eru hafðir utan yfir
aðra sokka. Það er sjálfsagt fyrir menn, sem vinna einhverja
útivinnu á vetrum, að hafa þá.
Ullarsokkar eru sjaldan notaðir í kaupstöðum, því að þar
ganga ungar stúlkur og flestar frúr i silki- og ísgarnssokkum.
'Ullarsokkar eru því notaðir meira í sveitum.
íslendingar ættu að nota meira af innlendum sokkum en
þeir gera, því að með því geta þeir sparað að senda peninga
4il annarra landa, fyrir það, sem þeir geta sjálfir búið til.
Edda Kvaran (12 ára), Austurbæjarskóla Reykjavíkur.