Dvöl - 01.01.1937, Blaðsíða 61

Dvöl - 01.01.1937, Blaðsíða 61
JOHN GALSWÖRTHV TRÉÐ Þýtt af Þórarni Guðnasyni Frh. V. Þegar hann vaknaði, fannst honum eins og hann hefði borð- að sig saddan um nóttina, og þó hafði hann ekki bragðað matar- bita. Og æfintýrið daginn áður virtist honum löngu liðinn at- burður og fjarri öllum veruleika. Þetta var yndislegur morgunn. Loksins var vorið komið í öllu sínu veldi — á einni nóttu virt- ust ,,gullhnapparnir“, eins og litlu strákarnir kölluðu sóleyj- arnar, hafa lagt túnið undir sig og úr glugganum sínum sá hann hvernig eplablómin þöktu aldin- garðinn, eins og hvít- og rauð- dröfnótt ábreiða. Hann fór nið- ur og bar næstum kvíðboga fyr- ir því, að hann myndi hitta Me- gan; og samt fann hann til gremju og vonbrigða, þegar hann sá, að það var ekki hún, heldur frú Narracombe, sem færði honum morgunverðinn. Honum sýndist óvenjulegt fjör í snögga augnaráðinu og hreyf- ingunum á höggormshálsi þess- arar konu. Skyldi hana gruna nokkuð ? „Svo að þér voruð á ferðinni í nótt, ekki síður en tunglið, hr. Ashurst! Fenguð þér nokkurs- staðar að borða í gærkvöldi?“ Ashurst hristi höfuðið. ,,Við geymdum kvöldmat handa yður, en þér höfðuð víst meira að hugsa en svo, að þér væruð að fást um slíka smá- muni?“ Var hún að hæðast að honum, þegar hún talaði svona til hans í hinum sérkennilega raddblæ sínum, sem ekki var enn búinn að missa velska hreiminn til fulls? Ef hún vissi nú allt! Og hann hugsaði með sér: ,,Nei, nei; ég skal losa mig undan þessu. Ég ætla ekki að hleypa mér út í svona bölvaða vit- leysu“. En þegar hann var búinn að borða, vaknaði þrá hans að sjá Megan og jafnframt því, sem þessi þrá hans óx, tók hann að óttast, að eitthvað hefði verið sagt við Megan, sem hefði eyði-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.