Dvöl - 01.01.1937, Blaðsíða 64

Dvöl - 01.01.1937, Blaðsíða 64
58 D'V 0 L indinu, sem hún var með í fang- inu. En hvað hann var ánægju- legur á svipinn, litla greyið!“ „Honum þykir strax vænt um þig. Ó, Megan, öllu þykir vænt um þ i g“. ,,Viljið þér. segja mér, hvað hann Joe var að tala um við yður?“ ,,Hann var að skipa mér að fara, vegna þess að þið kærðuð ykkur ekkert um að hafa mig hér“. Hún stappaði niður fætinum; svo leit hún á Ashurst. Þessi ástaraugu hleyptu af stað straumi, sem þaut eftir taugum hans, eins og þegar hann sá flugu brenna af sér vængina. ,,í kvöld!“ sagði hann. — ,,Mundu það!“ ,,Já“. Hún þrýsti andlitinu að litla, brúna, þriflega dýrinu og fór svo aftur inn í húsið. Ashurst gekk niður götuna. Við hliðið út að sléttunni hitti hann halta manninn, sem 'var þar með kýrnar. ,,Það er góða veðrið, Jim!“ ,,Hvað er um að tala. Þetta er fínasta grasveður. í vor eru eskitrén seinni til en eikurnar. ,,Þegar eikin eski fyrr —“ Ashurst sagði hægt og leti- lega: „Hvar stóðuð þér, þegar þér sáuð zigauna-vofuna, Jim?“ ,,Ja, ég veit ekki, hvað segja skal. Það 'væri þá helzt þarna yndir stóra eplatrénu". „Og þér haldið, að hún hafi áreiðanlega verið þar?“ Halti maðurinn sagði varfærn- islega: „Ég vil ekki ábyrgjast, að hún hafi v e r i ð þar. En mér fannst hún vera þar“. „Hvernig haldið þér, að á henni standi?“ Halti maðurinn lækkaði róm- inn. „Það er sagt, að húsbóndinn sálugi, herra Narracombe, hafi verið af zigauna-ættum. En það er líka nóg. Þeir eru nefnilega annálaðir fyrir að ganga fast eftir sínu. Ef til vill hafa þeir vitað, að hann var að fara, og hafa sent honum þenna náunga til fylgdar. Þetta hefir mér nú dottið í hug“. „Hvernig leit hún út, þessi vofa?“ „Hún var kafloðin í framan og stóð si-svona, rétt eins og hún héldi á fiðlu. Þeir segja, að það séu engar vofur til, en ég hefi séð hárin rísa á þessum hundi um hánótt, þegar ég sjálf- ur sá ekkert óvenjulegt“. „Var tunglsljós, þegar þér sá- uð hana?“ „Já, tunglið 'var nærri fullt, en alveg nýkomið upp og skein eins og gullkringla þarna milli trjánna“. „Og þér haldið, að draugar boði illt, er það ekki?“ Halti maðurinn lyfti hattinum ofar á ennið, og leit á Ashurst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.