Dvöl - 01.01.1937, Síða 63

Dvöl - 01.01.1937, Síða 63
D V ö L 57 fór niður aftur. Já, nú hafði hann gert það! Þáð ást hennar, játað sína eigin! Hann hafði ekki tekið neina bók með*sér úr herberginu. Svo gekk hann út að græna stólnum, settist þar og starði út í loftið eins og í leiðslu, fullur sigurgleði og sam- vizkubits, en allt í kringum hann var fólkið önnum kafið við bú- störfin. Hann hafði enga hug- mynd um hve lengi hann var búinn að sitja svona hreyfing- arlaus, þegar hann sá, að Joe stóð þar rétt hjá honum. Ungi maðurinn hafði auðsjáanlega verið við erfiðisvinnu úti við, hann tvísteig og dró andann djúpt, andlitið var blóðrjótt og loðnir, sólbrunnir handleggir komu fram úr bláum, uppbrett- um skyrtuermunum. Rauðar var- irnar voru opnar og bláu augun með löngu augnahárunumstörðu ákveðið á Ashurst. ,,Jæja, Joe, get ég nokkuð gert fyrir yður“, sagði Ashurst glettnislega. „Já“. „Hvað þá?“ „Þér getið farið burt. Við kærum okkur ekkert um að hafa yður hér“. Andlitið á Ashurst var aldrei neitt tiltakanlega blítt eða auð- mjúkt, en nú setti hann upp sinn hörkulegasta og drembilegasta ■svip. „Svo að þér segið það, en nú ætla ég að láta yður vita, að ég vil heldur, að hitt fóllíið segi sitt álit sjálft“. Ungi maðurinn gekk eitt eða tvö skref nær. „Hvernig stendur á að þér farið ekki héðan?“ „Af því að mér fellur vel að vera hér“. „Yður hættir að falla það vel, þegar ég er búinn að berja yð- ur, svo að um munar!“ „Nei, er það mögulegt? Hve- nær höfðuð þér hugsað yður að hefjast handa?“ Joe svaraði aðeins með hinum djúpa andardrætti, en augu hans voru eins og í reiðum tarfi. Svo var eins og allt í einu færu krampadrættir um andlitið. „Megan kærir sig ekkert um yður“. Ashurst varð gripinn svo mikilli afbrýði, fyrirlitningu og reiði gagnvart þessum feita og luralega bóndastrák, að hann missti al'veg stjórn á sér; hann stökk á fætur og ýtti stólnum aftur. „Farið þér til fjandans!" Og í því hann sagði þetta, sá hann, að Megan stóð í dyrunum með ofurlítinn mórauðan hvolp í fanginu. Hún gekk hratt í átt- ina til hans. „Hann er með blá augu“, sagði hún. Joe sneri sér við og fór; hann var eldrauður aftan á hálsinum. Ashurst bar fingurinn upp að kjaftinum á litla mórauða kvik-

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.