Dvöl - 01.04.1942, Side 4

Dvöl - 01.04.1942, Side 4
„en ég sé ekki svona langt frá mér.“ Þeir hölluðu sér fram á stafina og fylgdu hreyfingum komumanns- ins með ákafri eftirvæntingu. Finnig hann var háaldraður. Þeir voru meira að segja hálfgerðir unglingar í samanburði við hann. Hann var eins og spámaður í ísrael, gráskeggjaður og ævaforn. Hann var hafinn yfir tímans flug. En þótt hann líktist spámanni úr heilagri ritningu, skálmaði hann yfir torgið eins og kappgöngu- meistari. Hreyfingar hans voru furðulega kvikar og léttar. Þegar hann kom auga á gömlu mennina á bekknum, veifaði hann til þeirra stafnum af undursamlegum gáska. Það var líkast því, að ungur bar- dagamaður brygði sverði sínu. í tíu skrefa fjarlægð drundi þrumuraust hans: „Daginn, strákar! Sæll, Reuben minn! Sæll, Shepherd!" Þeir murruðu eitthvað sem svar við kveðju hans. Hann gaspraði um veðrið með gífurlegum vangavelt- um. Þeir mjökuðu sér stirðbusa- lega til á bekknum, og hann sett- ist. Ef vel var að gáð, mátti sjá, að ofurlítið létti yfir þungum svip þeirra, því að hann hafði gnæft yfir þá eins og líkneski úr silfri og bronzi. „Hélt kannske, að þú myndir ekki koma,“ muldraði Reuben. „Uss, búinn að ganga skrattans drjúgan spöl,“ hálfhrópaði hann. „Skrattans drjúgan.“ Þá brast áræði til þess að spyrja hann, hvert hann hefði farið, en hann sagði þeim það í óspurðum fréttum og ályktaði, að það væri aldrei minna en sex eða sjö mílur, sem hann hafði gengið. Þeir þögðu, þungbúnir og ofurlítið skömmustu- legir á svip. Þeim létti stórum, þegar þeir sáu hann fálma niður í vasa sína og draga upp poka með piparmintum í, svörtum og hvítum kúlum, sem komu bragðsterkar og samloðandi beint úr hitanum frá síkvikum líkama hans. Ein af ann- arri hvarf inn í tannlausa munna þeirra, og þeir sugu þær lengi, steinþegjandi og hátíðlegir, og virtu sólskinið fyrir sér. Meðan gömlu mennirnir sugu piparminturnar, biðu þeir þess, að Duke hæfi máls. Og þeir biðu þess eins og menn bíða véfréttar, því að í augum þeirra var hann furðu- verkið sjálft, íklætt holdi og blóði. Fyrir langalöngu, þegar þeir voru kornbörn og brjóstmylkingar, var hann uppkominn maður með sprottna grön, og áður en þeir komust í tölu ungra manna, hafði hann náð fullum þroska. Alla ævi hafði þeim fundizt þeir börn hjá honum. Og ennþá, í hárri elli, gerði hann þeim skömm til með dugnaði sín- um og lífsþrótti. Hann bjó yfir ódrepandi æsku, sem áreiðanlega var af einhverjum myrkum, leynd- ardómsfullum toga spunnin. Heim- urinn hinum megin við torgið var fyrir þeirra sjónum hulinn sól-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.