Dvöl - 01.04.1942, Síða 5

Dvöl - 01.04.1942, Síða 5
DVÖL 83 móðu, en Duke sá rottu skjótast inn í holu í mílu fjarlægð. Skarkah umheimsins barst þeim til eyrna eins og gegnum steinvegg, en hann heyrði tófu gagga í annarri sveit. heir voru dæmdir til þess að láta sér nægja minninguna, því að þeir gátu ekkert lesið. En Duke gein yfir dagblöðunum. Hann vissi upp á sína tíu fingur, hvað fram fór í heiminum og kunni allar kjafta- sögur. Á hverjum morgni flutti hann þeim fregnir af jarðskjálft- um í Perú, styrjöldum í Kína, morðum á Spáni og hneykslum innan klerkastéttarinnar. Hann bar skyn á dularfyllstu hræringar stjórnmálanna og skýrði fyrir þeim nýjustu fyrirmæli lög- gjafans. Þeir hlustuðu á hann hug- fangnir, eins og lærisveinar á meistara, báru takmarkalausa lotningu fyrir honum og trúðu í auðmjúkri undrun hverju orði, Stundum laug hann miskunnar- laust að þeim, en þeir voru granda - lausir. Þeir sátu nú þarna og sugu kúl~ urnar sínar alsælir, en skuggi kastaníunnar styttist óðum og vest- urbrún hans færðist nær fótum þeirra eins og fjöruborð í aðfalli. Enn hellti sólin logageislum sínum á hvítt torgið. Reuben kingdi síð- Ustu piparmintunni og hafði orð á því, hversu nú myndi framoröið. „Framorðið?“ sagði Duke drýg- indalegur. „Framorðið?" endurtók hann. Þeir sáu hönd hans lyftast há- tíðlega og hverfa inn í barminn. Þeir áttu ekki úr. Duke einn gat sagt þeim, hvað tímanum leið, þótt hann virtist sjálfur skjóta honum ref fyrir rass. Hægt og virðulega dró hann upp geysistórt úr, rétti það að lokum frá sér eins langt og silfurfestin náði og horfði á það einbeittur á svipinn. Þeir horfðu einnig á það, fyrst í hátíðlegri auðmýkt og síðan hljóðri furðu. Þeir hölluðu sér fram, blíndu á það og trúðu bersýnilega ekki sínum eigin augum. Úrið stóð. Gömlu mennirnir þrír störðu á úrið og mæltu ekki orð frá vörum. Þeim fannst eins og eilífðarvél hefði numið staðar. Það var engu líkara en tímanum sjálfum hefði allt í einu fatazt flugið. Duke hristi úrið gríðarlega. Vísarnir fóru af stað, færðust um eina eða tvær sekúndur frá hálff jögur og létu þar við sitja. Hann lyfti úrinu upp að eyranu og hlustaði. Það steinþagði. Stundarkorn sat gamli maðurinn áhyggjufullur og hugsaði sitt ráð. Þetta úr var furðuverk, eins og Duke, eldra en allt, sem gamalt var, jafnvel eldra en eigandinn. Oft og mörgum sinnum hafði hann gort- að af, hve gamalt það væri og vandað, fagurt og óviðjafnanlegt. Þeir minntust þess, að endur fyrir löngu hafði faðir hans átt það, að honum höföu verið boðnar í það feikna upphæðir, og að það hafði ekki stanzað frá því orrustan við Waterloo var háð. Loksins hóf Duke upp raust sína.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.