Dvöl - 01.04.1942, Page 15

Dvöl - 01.04.1942, Page 15
dvöl 93 kala þarna norður á hjara verald- ar, og þess vegna lögðu Aust- lendingar vongóðir af stað. Danskir vísindamenn, sem höfðu verið barna norður frá, vissu, að þar voru góð lífsskilyrði og nóg veiði, og Þangað var hægt að sigla flest ár. í'eir gerðu þenna þjóðflutning til Þess að létta á í Angmagsalik. Pólkið var að verða þar fleira held- ut- en veiðin gat borið. En land- výmið var nóg og nógir veiðifirð- ii’nir. Það varð að dreifa fólkinu. Ástæðan til þess, aö skipið ..Gustav Holm“ fór ekki beina leið frá Angmagsalik norður til Scores- bysunds, heldur fyrst til ísafjarö- ar, var sú, að það átti að vígja Pi'est nýlendunnar, Grænlending- inn Sejer Abelsen, sem átti að boða landnemunum í Scoresbysundi guðs °rð og kenna þeim trú á ljóssins hiátt og sjálfa sig. Aldrei höfðu Austlendingar áður farið á sjó með svo stóru skipi sem ..Gustav Holm“ var. Þeir voru van- ir því að ferðast í húðkeipum og kvenbátum með ströndum fram, borfa á hvert einasta nes og skaga eftir lendingarstað og tapa aldrei sJónar á landinu. En nú sigldu þeir á reginhaf. Maður getur Sert sér í hugarlund, hvernig þess- Prn náttúrubörnum var innan brjósts, þegar þau sáu háu og brikalegu fjöllin á Grænlandi bverfa, og ekkert var umhverfis að síá, nema endalaust ólgandi haf. Landsýnin var horfin. Hið frum- stseða fólk var komið út í hina miklu óvissu. Það undraðist þó ekki og gugnaði ekki. Rólegt og ákveðið reif það sig upp úr kunnu um- hverfi. Það kvaddi ættingja og vini rólega og geiglaust. Nýbreytninni á ferðalaginu tók það með sama jafn- aðargeði. Og var fljótt að koma sér fyrir í Scoresbysundi — en þangað kom það hinn 4. september 1925, undir vetur sjálfan. Það var ekki grænlenzka stjórn- in, sem stóð fyrir þessum flutningi, heldur Scoresbysunds-nefndin — Kommissionen, sem stofnuð var af áhugamönnum fyrir Grænlands- málunum. Þessi nefnd hafði und- irbúiö allt í Scoresbysundi fyrir komu landnemanna, byggt þar hús handa öllum, flutt þangað mat- vælaforða, er nægja skyldi öllum til þriggja ára, þótt veiði brygðist o. s. frv. En þegar fólkið var kom- ið þangað, tók grænlenzka stjórn- in við yfirráðum nýlendunnar. í bók sinni „De östgrönlandske Eskimoers Historie" segir Græn- landskönnuðui'inn, Ejnar Mikkel- sen, frumherji þess, að Skrælingj- unum á Austur-Grænlandi var bjargað frá tortímingu, svo frá: „Um leið og landnemarnir komu til Scoresbysunds var enn eitt hérað af eyðibyggðum Austur- Grænlands numið af frændum þeirra Skrælingja, sem þar höföu búið áður, en voru nú löngu horfn- ir — einu mönnunum, sem nokkrar líkur voru til að gætu staðizt bar- áttuna við náttúruna í þessu harð- indalandi.“

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.