Dvöl - 01.04.1942, Page 25

Dvöl - 01.04.1942, Page 25
D VÖL 103 rauðu brúðarskarti, stóð hún feim- in við hlið mér. Ávaxtasalinn horfði undrandi á hana. Hann fann, að hann gat ekki endurvakið hina gömlu vináttu. Að lokum brosti hann þó og sagði: „Jæja, litla vina, ertu nú á för- um í hús tengdaföður þíns?“ En nú skildi Miní, hvað þetta orðtak þýddi, og hún gat ekki svarað honum, eins og í gamla daga. Hún roðnaði aðeins og horfði niður fyrir fætur sína. — — Ég minntist dagsins, þegar Miní sá ávaxtasalann fyrst. Og ég gat ekki annað en hryggzt. Þegar Miní var farin, andvarp- aði Rahnun og settist á gólfið. Honum hafði allt í einu dottið i % hug, að á þessum langa tíma, sem liðinn var síðan hann var frjáls maður, hefði litla dóttir hans einn- ig orðið fulltíða kona. Hann varð nú að kynnast henni á ný og vinna vináttu hennar. Það voru liðin átta ár síðan hann hafði séð hana síð- ast. Hvað gat ekki hafa komið fyr- ir dóttur hans öll þessi löngu ár! Brúðkaupsflauturnar kváðu við. Hinn mildi haustblær streymdi inn um gluggann til okkar. Og Rahnun sat hér við þrönga götu í Kalkútta, en í huga sér sá hann hin nöktu fjöll í Afghanistan. Ég tók peningaseðil, rétti hon- um og sagði: „Farðu heim til þín, Rahnun, heim til ættland þíns og til barns- ins þíns. Og megi gleði endurfund- anna færa barninu þínu ham- ingju.“ Ég varð, vegna þessarar gjafar, að takmarka hátíðahöldin lítið eitt. Við gátum ekki haft jafn- mikið af rafljósum og við höfðum hugsað okkur, við gátum heldur ekki fengið hljómsveit frá hern- um. Kvenfólkinu þótti þetta leitt. En mér fannst brúðkaupið enn há- tíðlegra, er ég minntist þess að hafa gert ólánsmanni, sem lengi hafði verið fjarvistum ogf lengi hafði verið saknað af fólki sínu, fært að hitta aftur einkabarnið sitt og sjá fjarlægt ættland sitt. „Oægist út iir greni“. Það má ráða af ýmsum heimildum, að íslenzkir bændur hafi snemma litið tóf- una illu auga og reynt að útrýma henni. Skarphéðinn komst svo að orði í Njáls- brennu, að illt væri og smánarlegt að láta svæla sig í húsum inni eins og mel- rakka í greni. Má nokkuð af því marka, hvaða aðferð hefir þá verið tíðkanleg, er tortíma skyldi yrðlingum í greni. Sjálfsagt hafa refirnir snemma á öld- inni verið hrein plága í búfé manna, því að á alþingi 1295 var sú samþykkt gerð, „at hverr sá maðr, sem hann á sex sauði at vetri í sinni ábyrgð, skal taka einn melrakka gamlan eða tvo unga á tólf mánuðum eða greiða 2 álnir í mat fyrir fardaga." Ella hefði slík kvöð ekki verið í lög tekin. En þrátt fyrir allar samþykktir og allt fé, sem lagt hefir verið refnum til höfuðs, þraukar hann enn á heiðum ís- lands og enn veldur hann ýmsum dala- bændum þungum búsifjum.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.