Dvöl - 01.04.1942, Side 29
dvöl
107
Mynd þessi er tekin ofan af Geitlandsjökli, norðan til við Þórisdal. Sér suður Kalda-
&al yfir Geitáraura; til liœgri er Okið og Langjökull til vinstri. Geitá kemtur upp
undan Langjökli og fellur þarna út á sandana. — Þorsteinn Jósepsson tók myndina.
bárust tíðindin um andlát mágs
síns. Var hann lasinn og þreyttur,
Þegar hann hóf ferðina, og áður
en hann lagði á heiðina er sagt,
að hann hafi gert vísu þessa:
Herra guð í himnasal,
haltu mér við trúna.
Kvíði ég fyrir Kaldadal.
Kvölda tekur núna.
Hann komst ekki lengra en að
Biskupsbrekku. Þar andaðist hann
að nokkrum dægrum liðnum. Og
^láskógaheiði í faðmi fjallanna, í
Hki kyrrðarinnar og öræfafriðarins,
hefir verið honum viðeigandi bana-
heður. Þannig lauk hans viðburða-
«ku og stormasömu ævi, og þannig
hæfir mikilmenni að deyja. Hann
var að andlegu atgjörvi langt yfir
fjöldann hafinn. Slíkur maður lifir
jafnan sem einstæðingur, og það
er vel fallið, að hann deyi líka sem
einstæðingur, þar sem hollvættir
íslenzkra óbyggða halda vörð.
Lítið eitt norðan við Biskups-
brekku liggur vegurinn upp á lága,
en bratta hæð. Þegar upp á hana
kemur, sést litlu norðar lítið vatn.
Það liggur þar milli tveggja hæða,
og er vegurinn á vesturbakka þess.
Skamman spöl vestar er annað
vatn stærra, sem Brunnavatn heit-
ir. í báðum þessum vötnum er sil-
ungur, og umhverfis þau eru grös-
ugir flóar milli holtanna. í fyrsta