Dvöl - 01.04.1942, Side 36

Dvöl - 01.04.1942, Side 36
Í14 DVÖL honum var nauðsynlegt að hafa með sér í nýju vistina, og foreldr- ar hans óskuðu honum góðrar brottferðar og lögðu honum heil- ræði og minntu hann á orð Leió- Tsjú og hinna fornu spekinga: „Fagurt andlit fyllir heiminn ást- arvímu, er himinninn lætur aldrei blekkjast af slíku. Sjáir þú konu koma úr austurátt, þá líttu til vesturs; komir þú auga á ungmey, er nálgast vestan að, þá hverfðu augum þínum til austurs.“ Ef Mín-Væ láðist að fylgja þess- um ráðum síðar meir, þá var það sökum þess, hve ungur hann var og óvarkár og glaðlyndur að eðlis- fari. Síðan hélt hann brott til dvalar í húsi Tsjangs á hausti komanda og hinn næsta vetur. Þegar leið að öðru tungli um vor- ið og gleðidegi þeim, sem Kínverj- ar nefna Hóa-sjóa eða „fæðingar- dag hundrað blóma“, settist að Mín-Væ löngun til þess að sjá for- eldra sína. Hann sagði Tsjang, þeim göfga manni, frá þessu, en hann veitti honum ekki aðeins far- arleyfið, heldur þrýsti í lófa hans tveim únsum silfurs að gjöf, því að honum datt í hug, að piltinn lang- aði til þess að færa föður sínum og móður sinni ofurlitla gjöf. Það er siður í Kína að gefa vinum og ættingjum gjafir á Hóa-sjóa-há- tíðinni. Loftið var höfugt af blómaang- an þenna dag og ómaði af bý- flugnasuði. Allt i einu fannst Min-Væ, að í mörg, mörg ár hefði enginn farið stíginn, er hann lagði leið sína eft- ir. Hann var gróinn hávöxnu grasi. Til beggja handa uxu risatré, sem ófu saman stórar og mosavaxnar greinar yfir höfði hans og vörp- uðu skugga á götuslóðann. Skugg- sæl skógarhöllin ómaði af fugla- söng, og víðir laufskógarnir voru bryddir gullnum eimi og baðaðir blómailmi eins og musteri reykels- isangan. Draumljúfur fögnuður dagsins hitaði Mín-Væ um hjarta- ræturnar, og hann settist niður meðal vorblómanna, undir sveigð- um greinum, er báru við heiðan himin, og svalg að sér ilminn og naut hinnar djúpu, unaðslegu kyrrðar. Er hann hvíldist þarna, barst honum hljóð, svo að honum varð litið við, þangað sem forsælu bar á og villt ferskjutré stóð í blóma. Þar sá hann þá unga stúlku, fegurri en bleikrauð blómin, sem hún reyndi að fela sig meðal. Mín- Væ gat ekki komizt hjá því að sjá yndisbraginn á andliti hennar, þótt hann horfði aðeins andartak á hana: gullskæran hörundsblæinn og fjör djúpra augna, sem ljómuðu undir bogadregnum augnabrúnum, jafn hnituðum og þandir vængir á silkifiðrildi. Mín-Væ leit þegar í aðra átt, reis skjótt á fætur og hélt áfram göngunni. Vitneskjan um þessi dásamlegu augu, sem höfðu horft á hann gegnum lauf- ið, fékk svo á hann, að hann glopr- aði niður silfrinu, er hann bar í 1

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.