Dvöl - 01.04.1942, Page 58

Dvöl - 01.04.1942, Page 58
136 ingarnir sjálfir lögðu gífurlega mikið kapp á að æfa sig í því, er að haldi gæti komið í ófriði. Má þar nefna „Lottu“-hreyfinguna meðal kvenna og skotæfingafélög karlmanna, og jafnvel gervalla í- þróttastarfsemina í landinu. Þessi beygur var ekki ástæðu- laus, eins og síðar kom á daginn. En um það ætla ég ekki að ræða hér. Mig langar miklu fremur til þess að leiða hugann burt frá vopnabraki og skotdrunum og virða fyrir mér einn eða fáa drætti í svip „hinnar hvítu borgar“ eins og hún var, áður en skuggann af heimsvaldabaráttu stórveldanna lagði yfir torg hennar og stræti, meðan enn var fritt í Kirjálabotni og Finnlandsflóa. II. Helsingfors er í Nýlandi á nesi ekki stóru við Finnlandsflóa. Hafn- arvirki borgarinnar eru aðallega við þrjár víkur: Sandvíkurhöfn, vestan á nesinu, svonefnd Syðri- höfn og Nyrðrihöfn austan þess. Skilur klettahæð, er Kronbárg heitir og allstór tangi, Skatudde, á milli Syðrihafnar og Nyrðri- hafnar. Norðan á tanganum er flotastöð, og áður var einnig flug- völlur og flughöfn þar á nesinu. í stórum dráttum er svo hagað hafnarnotum, að Sandvíkurhöfn er ætluð vöruflutningaskipum, Syðri- höfn fiskibátum, strandferðabát- um og skerjagarðsbátum ogNyrðri- höfn farþegaskipum, lystisnekkj- D VÖL um og strandferðabátum ýmsum, sem eru til fólksflutninga, auk þess sem flotinn hefir þar bækistöð með tilheyrandi hervörzlu og um- ferðartálmunum. Við Syðrihöfnina er allstórt torg, líklega um 200 metra langt, er Sölutorg er nefnt. Segja víðförlir og fróðir menn, að Sölutorgið í Helsingfors eigi vart sinn líka, hvar um heim sem leitað sé. Verður því hér að nokkru lýst, þótt sú mynd, sem ég get brugðið upp af torginu og lífinu þar, verði „svipur hjá sjón“, og ekki meira, jafnvel þótt ég njóti aðstoðar þeirra, er kunna tökin á lifandi lýsingum. Við skulum gera okkur í hugar- lund, að það sé morgunn í maí. Sólin skín á heiðum himni; trén á Esplanaden, vestan torgsins, og við þýzku kirkjuna, austan Skatudds- brúarinnar, eru komin í sumar- skrúða. Stórhýsin norðan við torg- ið eru böðuð í sólskini. Þar er drif- hvítt ráðhúsið, sænska sendiráðs- höllin, aðsetur utanríkismálaráðu- neytisins og austast, næst Skat- uddsbrúnni, forsetahöllin. Sunnar- lega á torginu og vestarlega er Havis Amanda, fögur líkneskja eftir myndhöggvarann Ville Vall- gren. Umhverfis fótstall gyöjunnar er hvelfd vatnsskál, og liggja fjórir höfrungar á skálarbörmunum og úða vatni niður í skálina með létt- um kliði. Allmiklu austar, framan við sendisveitarbústaðinn sænska, rís stór steinvarði, sem á blóma- tímum rússnesku keisaradæmisins

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.