Dvöl - 01.04.1942, Síða 60

Dvöl - 01.04.1942, Síða 60
138 DVÖL inu: Bústnar kerlingarnar, varla faðmtækar meðalmanni, góðlát- lega og pervisna karlana, sem tæpast virðast við fyrstu sýn jafn- okar kvenfólksins, en reynast þó laundrjúgir, þegar til á að taka, og fiskimennina með glitrandi hreistur í hári og skeggi, — þetta er sómafólk, sem gerir sér allt far um að selja góðar vörur við lágu verði. En því rennur kannske hálf- vegis í skap við illgjarnt fólk og tortryggið, sem vænir það um aö selja skemmdar vörur og þrefar og þrakkar tímunum saman um tvö eða þrjú mörk. Beri slíkt við, þusar stundum langreynd sölukerl- ing eitthvað í barm sér, ekki sízt, ef kvenmaður á í hlut. Hún ávarp- ar þó kynsystur ekki beint, en læt- ur hana á sér heyra, að ævinlega sé skemmtilegra að selja karlmönn- um, því að þeir séu þó ekki alla jafna með aðra eins béaða reki- stefnu og hótfyndni, aðfinnslur og útásetningar, þjark og þref og kvenþjóðin, og verstar séu þær frúrnar, sem þykjast vera finastar. Ja, svei! Þær væru ekki ofsælar af því að standa hér á torginu dag eftir dag og sjá borgarbúum fyrir lífsnauðsynjum og hafa ekkert upp úr því nema fyrirhöfnina. Það lætur að líkum, að svo tigin dama, sem Havis Amanda, yndi sér illa á meðal fiskkassa og kartöflu- vagna, með moldarþef og slorlykt fyrir vitum. Nei, í kringum ung- frúna þá er líka litaskrúð og blóma- angan. Þar eru seld blóm og skraut- jurtir og suðræn aldin. Og Havis Amanda brosir stirnuðum steinvör- um, og höfrungarnir úða tæru vatni um fótstall hennar. Sunnar á torginu hafa blindir menn aðsetur sitt. Þar er engin litadýrð, sem ginnir hinn alsjáandi vegfaranda. En þar fást tágakörf- ur, sem fléttaðar eru af hreinustu list, ausur og sleifar, burstar og barnavagnar. Því austar sem dreg- ur á torgið og nær forsetahöllinni, því fábreyttari eru þær vörur, sem á boðstólum eru. Þar eru engin skrautblóm á boðstólum, engin glóandi aldin, ekkert hnossgæti. Þar húka samanskroppnar og van- sæiar kerlingar og ótótlegir karlar á steinlagningunni og selja eld- spýtur,skóreimar og allskonar smá- varning. Þarna eru hinir örsnauð- ustu, hinir umkomulausustu allra í hópi þeirra, sem afla sér lífsþurfta með iðju sinni á Sölutorginu — fólk, sem lifir á næsta þrepi við betlara. Svo slær klukkan tólf á hádegi- Fyrr en ókunnugur maður hefir áttað sig er allt sölufólk, allir vagnar, allar körfur, allt horfið af torginu. Allir hraða sér brott. — Soltnir hundar róta í ruslinu, sem liggur í dreifum á auðu torginu, hnusa og snapa, fitja upp á trýnið við nærgöngula þjáningabræður sína, urra og glefsa. En brátt leggja þeir rófuna á milli lappanna og hundskast brott, því að grátt og ósélegt hreyfitæki brunar inn á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.