Dvöl - 01.04.1942, Side 62

Dvöl - 01.04.1942, Side 62
140 D VÖL gefið af því eitt einasta hár. Þegar menn spurðu Baldur, hvort ekki væri rétt að gefa af hey- inu, var þetta venjulega svar hans: „O, þetta er nú síðasta tuggan, sem ég hefi slegið í mínu landi, karl minn.“ „En hvers vegna að halda þess- ari tuggu eftir, ár frá ári?“ „O, ekki hafa menn þurft að sækja hey til annarra í Eystra- Gerði hingað til, lagsi minn. Og ég ætla að lofa þessu heyi að vera þarna meðan ég ræð hér............. Þetta er minn síðasti sláttur, síð- asti ávöxtur starfa minna." Og þar við sat...... Gamla heyið var kyrrt á sínum stað og síðustu árin óx stór gras- toppur upp úr fúnu torfinu. Heyið var trúlega farið að dofna til fóð- urs. „Ég trúi, að það verði stutt á milli okkar,“ rumdi í gamla mann- inum. „Vitleysa," sagði sonur hans. „Þú segir það, sonur sæll. En oft er það gott, er gamlir kveða, segir máltækið. Sannaðu til, dengsi minn.“ Þorri leið og Góa kom, og ekki batnaði tíðin. Það var farið að fréttast um heyleysið á ýmsum bæjum....... Einn daginn, þegar sólin sendi geisla sína yfir snjóhvítt og freðið landið, yfir þessa eyðilegu byggð, kom maður austan að. Hann var gangandi og teymdi hest fyrir sleða. Þetta var Guðgeir, bóndinn á Brún. Hann barði að dyrum í Eystra-Gerði. Andrés, sonur Bald- urs gamla, kom til dyra. Er þeir höfðu heilsazt og rætt um tíðar- farið og skepnuhöldin nokkra stund, var eins og kæmi einhver ónota kökkur í hálsinn á Guð- geiri. Svo sagði hann. „Ef til vill grunar þig í hvaða erindagerðum ég er kominn .....“ Það var ekki sami styrkur í rómn- um og venjulega. „Ojá, sei sei já. Það mun ekki vera vel ástatt hjá þér. Annars skaltu tala við föður minn um þetta.....“ Rétt á eftir kom Baldur gamli að utan, úfinn eins og veturinn, með klaka í skegginu. Hann púaði og fékk sér í nefið og var hressi- legur að vanda. „Sæll veri komumaður," sagði hann. „Komdu sæll.“ „Þú munt koma heiman að.“ „Jú, lagði af stað með birtingu.“ „Farðu og gefðu hestinum hans, drengur minn,“ mælti hann við son sinn; svo sneri hann sér að Guðgeiri: „Ljóta tíðin þetta, karl minn.“ „Já, heldur það.....“ Guðgeir ræskti sig. „Hún tekur upp á heyjunum.“ „Já, ég gaf kúnum síðasta töðu- hárið í morgun. Jón á Brandsstöð- um er að verða heylaus fyrir ærnar og flestir orðnir heylitlir þarna austur frá.“

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.