Dvöl - 01.04.1942, Page 64

Dvöl - 01.04.1942, Page 64
142 D VÖL jörðina, þar sem fönnina hafði skafið af í næðingunum...... í einmánaðarbyrjun sást fram á heybrest í Eystra-Gerði... Einn daginn fór Andrés að vanda um við föður sinn, að hann hefði verið nokkuð örlátur á heyin. „O, skyldi okkur vera vandara um en hinum, sonur sæll; ekki eru öll hey étin enn. Mér segir svo hugur um, að tíðin fari að batna.....“ En heyin minnkuðu dag frá degi, og ennþá var himinninn heiður, og ennþá blés norðangolan köld og kveljandi; ennþá voru gluggarúðurnar í bænum þaktar glitrandi rósum vetrarins. Einn daginn stóð Baldur gamli uppi í heygarði og horfði á hrossin berja gaddinn fyrir neðan túngarðinn, þar sem mjöllina hafði skafið af. Hann var þungbúinn, gamli mað- urinn, og í myrkum augum hans fólust margs konar hugleiðingar. Eftir nokkra stund kallaði hann á yngsta son sinn og sagði: „Farðu og náðu í hrossin og rektu þau inn.“ ,Svona snemma?“ „Já, hlýddu." Gamli maðurinn var önugur. Sonurinn fór. Gamli maðurinn fór út í hest- húsið og náði í stóran meis. Svo settist hann við gamla heyið og tók að leysa. Heyið var fast, en hendur gamla mannsins gengu ótt og títt eins og þær væru að vinna eitthvert ólögmætt verk. Svitinn spratt fram á enni hans, þrátt fyrir kuldann.....Upp frá þessu var tekið af gamla heyinu á hverjum degi. „Nú sverfur að í Eystra-Gerði, úr því að Baldur gamli fór að taka af stabbanum," sögðu menn, þegar þetta vitnaðist. Eftir miðjan einmánuð byrjaði að rigna. Fannirnar slökknuðu og urðu mórauðar af ryki og rusli- Hér og þar sást í bera jörðina. Einn morguninn fór Baldur gamli upp í heygarð og byrjaði að leysa af gamla heyinu. Það var aðeins smá stabbi eftir, sem riðaði og skalf í hvert sinn, er heykrókn- um var beitt af nokkuru afli- Frosið torfið stóð fram af og myndaði skjól, en gerði stabbann valtari en ella. Baldur gamli settist á meisinn og fékk sér í nefið og snýtti sér duglega. „Oft hefir nú verið meira um hey í Eystra-Gerði að vori,“ taut- aði hann, en glotti við tönn. Svo leit hann upp í loftið og horfði á grá og þungbúin rigningarskýin- Regndroparnir hrundu niður í úf- ið skeggið og duttu niður á kinn- arnar eins og tár. „Það er vor í lofti,“ tautaði hann. „Veturinn hefir kostað okk- ur erfiðar fórnir og gefið okkur þá reynslu, sem minnir okkur á, að við erum aðeins vesalar mann- skepnur, sem verða að beygja sig undir hin voldugu öfl.“

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.