Dvöl - 01.04.1942, Síða 67

Dvöl - 01.04.1942, Síða 67
D VÖL 145 og stakk fast við með beinum örmum. Vatnið svall við árar- blaðið. Skyndilega beygði áin í hálf- hring fyrir skógarnes. Hinir höllu kvöldgeislar sólarinnar urpu glóð sinni á bátshliðina og köstuðu löngum, afmynduðum skuggum af bátshöfninni á glampandi vatns- flötinn. Hvíti maðurinn sneri sér við og horfði fram á leið. Báturinn hafði breytt stefnu, svo að hann rann nú þvert í strauminn, og út- skorið drekahöfuðið á stafninum bar beint í rjóður milli tytjulegra runna á árbakkanum. Hann þaut áfram, straukst við greinar, sem hengu lágt út yfir vatnið og hvarf af ánni eins og rennilegt dýr, sem yfirgefur vatnið og leitar sér hælis í skóginum. Þarna var þröng vík, líkust ál, krókótt og draugaleg og harla skuggaleg, þrátt fyrir heiðan og bláan himin. Rósatré gnæfðu við loft, þakin klifurjurtum. Niður við dökkt vatnið skein hér og þar í dökkar og fúnar rótarhnyðjur stórra trjánna, mitt í burkna- flækju, samangrópaðar eins og fjötraðar slöngur. Stuttorð tilsvör ræðaranna endurómuðu hástöfum i þessari draugalegu gróðrarhöll. Myrkrið eins og seytlaði fram milli trjánna, gegnum þéttriðnar vafn- ingsjurtaflækjurnar, undan ótrú- lega stórum og hreyfingarlausum blöðum, dularfullt og máttugt hiyrkur, þrungið ilmi og blandið lsevi ófærra frumskóga. Mennirnir stjökuðu bátnum inn grynningarnar, inn á allstórt lygnt síki. Votlendir, lágir bakk- arnir, skóglausir og vaxnir grænu, sefkynjuðu grasi, lokuðust eins rammi um himinblámann, sem speglaðist í tjörninni. Dumbrauð skýjatröf lágu hátt á lofti og urpu litblæ sínum á blöð flotjurt- anna og silfurlit blöð lótusblóm- anna. Álengdar sást lítið, svart hús á háum staurum. Við það uxu tveir pálmar, sem engu var líkara en komið hefðu út úr skóginum að húsabaki og hallað sér mjúklega fram á rytjulegt þakið og hneigt hnarreistar og laufprúðar krónur sínar af varúð og næmri angur- værð. Stýrimaðurinn benti með ár sinni og sagði: „Hér býr Arsat. Ég sé, að bátur- inn hans er bundinn við staur- ana.“ Ræðararnir stjökuðu bátnum áfram og litu um öxl að endaðri dagferð. Sjálfir hefðu þeir fremur kosið að eiga næturgistingu ann- ars staðar en á þesSu draugalega síki. Auk þess var Arsat þeim ekki að skapi. Hann var aðkomu- maður og hafði hresst við gamlan eyðikofa og bjó í honum — sagðist hvergi smeykur að búa þar með vofunum, er jafnan reika um á þeim stöðum, sém fallið hafa úr byggð. Slíkur maður getur breytt rás viðburðanna með einu augna- tilliti eða einni setningu, og varn- arlitlum ferðamönnum er ekki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.