Dvöl - 01.04.1942, Page 70

Dvöl - 01.04.1942, Page 70
148 D VÖL „Nei, Tuan,“ sagði Arsat hæg- látlega. „Ef það eru mín forlög. Ég heyri, ég sé, og ég bíð. Ég man .... Tuan! Manstu forðum? Manstu eftir bróður mínum?“ „Já,“ svaraði hvíti maðurinn. Malajinn reis á fætur í skyndi og fór inn. Hinn lá kyrr úti. Hann heyrði gerla rödd Arsats, er hann sagði: „Hlustaðu á mig! Talaðu!" Síðan varð alger þögn. „Diamelen,“ hrópaði hann allt í einu. — Síðan þungt andvarp. Arsat kom út aftur og settist á sama stað og áður. Þeir dormuðu þegjandi við eldinn. Inni í húsinu var dauðaþögn. Lengst utan af síkinu bárust raddir ræðaranna yfir lognkyrrt vatnið; annars var hvergi hljóð að heyra í grenndinni. Það glytti dauflega á eld í stafni bátsins. En brátt kulnaði hann út, og raddirnar hljóðnuðu. Það var hvarvetna kyrrð og myrkur, eins og ekkert væri lengur til, nema ævarandi stjörnublik gegnum næt- urdökkvann. Hvíti maðurinn starðiútímyrkr- ið. Návist dauðans, hins ósýnilega og óhjákvæmilega gests, vakti óró, sem honum var í blóð borin, skelfdi hann og seiddi og gaf innstu og leyndustu hugórum hans byr und- ir vængi. Hinn sívakandi ótti við kynjaverur, þessi nagandi grunur, sem leynist í hug mann, magnað- ist þarna i kyrrðinni, djúpri og ó- rofinni. Hún var áðeins sakleysis- legur og gagnsær hjúpur á ægi- legu umhverfi. Loftið var lævi blandið, og allt var ótryggt. í þess- ari skyndilegu hugaræsingu fannst honum jörðin helzt vera skugga- dalur, þar sem háð væri trölla- stríð — hún væri orrustuvöllur vætta og forynja, góðs og ills, er tefldu í ákafa um valdið yfir varn- arlausum mönnunum. Yfir þessari hvíldarvana og leyndardómsfullu jörð óseðjandi óska og ótta lýsti stj örnufriðurinn. Óhugnanlegur þytur barst ut- an úr myrkrinu. Honum brá við. Það var eins og hinn mikli villi' skógur í kring væri að reyna að hvísla í eyra hans vizku sinni- Skógurinn var hafinn hátt yfir alla aðila í þessari baráttu. Hljóð- in mynduðust rétt hjá honum og urðu brátt að orðum, sem loks runnu saman í hógværa og jafn- róma frásögn. Hann starði í kring- um sig eins og maður, sem vaknar af svefni, og færði sig ofurlítið til- Arsat sat hreyfingarlaus og þung- búinn og laut höfði undir stjörnu- boganum. Hann talaði lágri röddu og angurværri: „--- því að er það ekki eina leiðin til þess að létta af sér byrð- inni, að trúa vini sínum fyrir á- hyggjunum? Karlmaður verður að tala um stríð og ást. Þú veizt, hvað stríð er, Tuan, og þú hefir séð mig halda til móts við dauðann af sama ákafa og aðrir leita lífsins. Það fyrnist, sem skrifað er, og oft er lýgi færð í letur, en það, sem

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.