Dvöl - 01.04.1942, Side 71

Dvöl - 01.04.1942, Side 71
DVÖL 149 maður sjálfur hefir lifað, er sann- leikur og gleymist aldrei. „Ég man það,“ sagði hvíti mað- urinn lágt. Arsat hélt áfram með þeirri ró, er sorgin veitir: „Þess vegna ætla ég að tala við þig um ást mína í myrkrinu. Tala við þig, meðan nóttin og ástin vara enn — áður en dagsljósið nær að skína yfir harm minn og skömm. Svipur minn er myrkur og hjart- að kramið.“ Hann andvarpaði og nam örlítið við, en hélt síðan áfram án þess að hræra sig: „Þegar þrautatímarnir voru úti og stríðið búið, fórst þú brott úr landi mínu, þangað sem hugurinn dró þig, í leit að því, sem við, er þessa eyju byggjum, skiljum ekki. En við, ég og bróðir minn, urðum áfram hermenn landstjórans. Við vorum af höfðingjakyni og flest- úm hæfari til þess að bera tákn valdsins um öxl. Og Li Dendring lét okkur njóta þess, þegar batn- aði í ári, að við höfðum sýnt mikla tryggð og mikið hugrekki á neyð- artímunum. Það komu friðarár.Við Undum við dýraveiðar og hanaat. iðjuleysisráp og heimskulegar deil- Ur um fáfengilega hluti. Maginn Var mettur og vopnin ryðguð. En íarðyrkjumennirnir gátu óttalaust horft á hrísgrjónaakurinn blómg- ast, og kaupmenn komu og fóru; þeir fóru magrir og komu aftur feitir á friðsælt fljótið. Þeir sögðu tíðindi og blönduðu saman sönnu ogj lognu, svo að eng^nn vissi, hvort gleðjast skyldi eða hryggjast. Við fréttum einnig um þig hjá þeim. Þeir höfðu séð þig á ýmsum stöðum. Og mér þótti vænt um að frétta af þér, því að ég mundi eftir stríðsárunum, og ég mundi alltaf eftir þér, Tuan, — þangað til hug- ur minn lokaðist fyrir öllu því, sem liðið var, og augu mín sáu aðeins eitt: hana, sem nú er að deyja — þarna í kofanum.“ Hann þagnaði og hvíslaði af ást- ríðuþrungnum ofsa: „Mara bahia! Ó, ógæfa mín.“ Síðan hélt hann áfram dálítið hærra: „Enginn getur verið hættulegri óvinur og enginn betri vinur heldur en bróðir manns, Tuan, því að bræður gerþekkjast, og það er mestu hægt að orka til góðs eða ills, ef ekkert brestur á kynning- una. Ég elskaði bróður minn. Ég fór til hans og sagði honum, að ég sæi ekki nema eitt andlit og heyrði aðeins eina rödd. Hann svaraði: „Ljúktu upp hjarta þínu fyrir henni, svo að hún sjái hvað inni fyrir býr — og bíddu. Þolinmæði er dyggð. Ef til vill deyr Inchi Midah eða hershöfðinginn hættir að banna kvonföng." — Ég beið. .. Þú manst eftir stúlkunni með and- litsslæðuna, Tuan? Manstu hvað hershöfðinginn óttaðist brögð hennar og kænsku? Hvað gat ég gert.efhana vantaði þjón?Égsaddi hungrið með því að horfa á hana og varpa á hana kveðju. Á daginn L

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.