Hlín - 01.01.1942, Qupperneq 49
Hlin
47
Ingibjörg var fædd 28. maí 1875 á Marðarnúpi í
Vatnsdal. — Hún var af góðum, húnvetnskum bænda-
ætturn, ólst upp á ágætu heimili, í hópi gáfaðra og glæsi-
legra systkina, sem öll hafa unnið dáðríkt starf í þessu
þjóðfjelagi, þó Guðmundur landlæknir markaði dýpst
spor í þjóðlífinu um langt skeið.
Ung var Ingibjörg manni gefin, Jóni Guðmundssyni
á Torfalæk, þau giftust árið 1901, og á Torfalæk bjuggu
þau æ síðan og gerðu garðinn frægan. Þau eignuðust 7
syni og ólu upp 2 stúlkur.
A heimilinu vann Ingibjörg sem aðrar góðar hús-
freyjur og mæður þessa lands hafa unnið fyr og síðar,
en það er ekki sama hvernig starfað er, hvernig sam-
starfið gengur og livað ávinst. — Hjer var unnið af lífi og
sál, af þrótti, festu og kærleika, glaðværð og bjartsýni.
Samvinna hjónanna var með afbrigðum góð, þau störf-
uðu sem einn maður. Jeg sá þau lijón nokkrum sinnum
saman, bæði heima hjá sjer og á mannamótum. Altaf
fanst mjer það vera líkara að þarna væri nýtrúlofað fólk
á ferð en öldruð hjón. — Ingibjörg varð aldrei gömul,
það gerði lífsgleði hennar og trú á menn og málefni. —
Það er gott að eiga sem flest af því fólki. — Þessvegna var
æfinlega svo gott að vera návistum við Ingibjörgu á
Torfalæk. — Þessvegna var hún líka sjálfkjörinn foringi,
þegar konur fóru að lmgsa til l'jelagsskapar í sveit sinni.
Það leysti hún af hendi sem önnur störf sín með dugnaði,
samviskusemi og bjartsýni, enda varð henni jafnan að
trú sinni í þeim efnum sem öðrum. — Ingibjörgu var
líka falið að vera í fræðslunefnd sveitar sinnar. Hún var
og kjörin formaður Sambands húnvetnskra kvenna. —
Bæði kvenfjelagið og Sambandið komu mörgum þörfum
málum í framkvæmd í Ingibjargar stjórnartíð með að-
stoð annara góðra kvenna.
Vinir Ingibjargar og sveitungar, sem mæla eftir hana
látna, láta sjer sjerstaklega tíðrætt um, hve heimili þeirra