Melkorka - 01.05.1944, Page 5
MELICORKA
TÍMARIT KYENNA
Ritstjórí:
RANNVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR
Ritnejnd: Þóra Vigjúsdóttir • Valgerður Briem ■ Petrína Jakobsson
1. hefti • Maí 1944 • 1. árgangur
Sól er á lof t komin...
Ejtir Rannveigu. Kristjánsdóttur
„Það var til tíðinda einn morgun, er
Höskuldur var genginn út að sjá um bæ
sinn; veður var gott, skein sól og var ’lítt á
loft komin; hann heyrði manna mál, hann
gekk þangað til sem lækur féll fyrir tún-
brekkunni, sá hann þar tvo menn og kenndi; var það Ól-
afur son hans og móðir hans, fær hann þá skilið að hún
var eigi mállaus, því að hún talaði þá margt við sveininn.
Síðan gekk Höskuldur að þeim og spyrr hana að nafni
og kvað henni ekki mundu stoða að dyljast lengur.
Síðan mælti hún, ef þú villt nafn mitt vita, þá heiti
eg Melkorka.... Mýrkjartan heitir faðir minn og er
konungur í írlandi, eg var þaðan hertekin fimmtán vetra
gömul.“
Islenzku konur! Þögn okkar hefur verið þrá-
lát og löng eins og þögn Melkorku, og sjaldan
rofin nema þegar 'móðir leggur barni sínu heil-
ræði. í gegnum soninn hefur móðirin alltaf sagt
til nafns síns, hvatt hann til dáða.
En hin vaxandi samtök alþýðunnar í landinu
veita konunni fyrirheit um fegurri dag og krefj-
ast þess um leið af henni, að hún skilji ábyrgð
sína, sem þjóðfélagsþegn og hlutgengur aðili í
baráttu hinna vinnandi stétta.
,,..eg var þaðan hertekin 15 vetra..“
I upphafi tímans var vegur konunnar mikill.
Jörðin var þá sameign ættflokksins.
Konan kunni góð skil jarðyrkjunnar
og var fræg fyrir fjölkynngi. Börnin
báru nafn hennar.
En framleiðsluhættirnir breyttust, einkaeigna-
rétturinn náði rótfestu og með honum sú starfa-
skipting, sem síðar flutti öll völd í hendur karl-
manninum — konan hætti að mæla á opinberum
vettvangi.
„..veður var gott, skein sól og var lítt
á loft komin.... “
Verkalýðurinn og konurnar tóku þátt í frönsku
stjórnarbyltingunni, og hlutu upp frá því smám
saman pólitísk réttindi. En hið félagslega og
fjárhagslega jafnrétti roðaði aðeins við sjón-
deildarhring.
Fyrsti maí nálgast nú óðum, og ef til vill verð-
ur kúgunarstefna Evrópu sigruð áður en fyrsti
maí rennur aftur upp. Sá sigur verður unninn í
tákni þessa dags fyrir samtakamátt sigrandi
þjóðskipulags.
Fyrsti maí er baráttudagur verkalýðsins. Sól
hans er á loft komin og sigur hans getur aftur
veitt konunni málið, ef hún fylkir sér undir merki
MELKORKA
1