Melkorka - 01.05.1944, Síða 16

Melkorka - 01.05.1944, Síða 16
Katrín Thoroildsen lœknir en hjartslátturinn hraður og sterkur. Jafnvel hárin rísa, því allir vöðvar eru spenntir og við tökum til fótanna eða veitum viðnám. Meðan á hræðslukastinu stendur hækkar blóðþrýstingur- inn, blóðsykur eykst, en meltingin stöðvast, því orku er ekki eytt í neitt það, sem hjá verður komizt. Hún beinist öll að því einu að verjast. Stundum getur viðbragð líkamans orðið svo snöggt og ákaft, að það missi marks, verði til böls en ekki bóta, maðurinn geti hvorki hrært sig né hrópað, og dæmi eru til þess, að menn hafi dáið úr hræðslunni einni. Þá kemur það og þráfaldlega fyrir, að hræðslan truflar manninn svo, að hann verður ekki var annars háska, sem að steðjar og ef til vill er hinum fyrri miklu meiri. Langvarandi eða síendurtekinn ótti, hvort sem hann er mikill eða lítill, kvíði eða skelfing, setur sitt mark á líkamann. Afleiðingin verður veik- indi, lífræn og starfræn, í meltingarfærum, hjarta, æðakerfi og taugakerfi. Þetta eru tíðar truflanir hér á landi sem annars staðar. Það er fyrir aðgerðir taugakerfisins, að ótt- inn altekur líkamann, en það hefur eins og kunn- ugt er það hlutverk að vinna, að samhæfa hin ýmsu líkamsfyrirbrigði og viðhalda jafnframt sambandinu við umheiminn. Það er venja að líkja taugakerfi mannsins við síma og símstöðv- ar og er þá heilinn miðstöðin, mænan millistöð, en taugarnar símaþræðir, sem flytja heilanum fregnir um það, er fram fer og bera út boð hans og fyrirskipanir. Sumar tauganna lúta stjórn vilj- ans milliliðalítið, til dæmis þær, sem annast hreyfingu limanna o. s. frv. Innri starfsemi lík- amans er aftur á móti ekki viljanum háð, henni er stjórnað af sérstöku taugakerfi, sem kalla mætti sjálfvirkt, til að halda líkingunni. Af sjálf- virkum taugum er aragrúi um allan líkamann og sums staðar mynda þær þétta hnökra, sem eru einskonar millistöðvar. Einn slíkur hnökri, all- myndarlegur, er í kviðarholinu ofanverðu. Hann er nefndur sólarhnökrinn, og var lengi vel álitið, að í honum hefði viðkvæmni og kjarkur aðsetur sitt. En sennilega hefur þótt óviðeigandi að skipa svo virðulegum kenndum sess neðan þindar og almenningsálitið því gert sér hægt um hönd og flutt hugtakið upp í hjarta. Enn í dag tíðkast það hér á landi og víðar að tala um viðkvæmt hjarta, brjóstheila menn, og taugaveiklun er almennt kölluð hjartveiki. Nú vita menn, að þótt sólarhnökrinn sé merki- leg stöð, þá er hann ekki endastöð frumkennd- anna, hún er uppi undir heila og nefnist Thala- mus. Frá Thalami liggja ótal þræðir til fram- hluta heilans, en þær eru heimkynni vitsmuna, at- hyglisgáfu, endurminninga og ímyndunarafls. Sambandi stöðva þessara er þannig varið, að hvor um sig getur að staðaldri haft áhrif á hina, ýmist örfandi eða letjandi. Með dýratilraunum hefur tekizt að sýna óvéfengjanlega, hve sefandi áhrif skynsemin hefur á hræðslukenndina. Hægt er til dæmis að nema burtu heila úr ketti án þess að dýrið deyi. Sé aðgerð þessi framkvæmd á þann hátt, að Thalamus sé eftir skilinn, er dýrið einlægt á verði í stöðugu skelfingarástandi. Við hverri hræringu umhverfis bregzt það með fnæsi og frussi, hár þess rísa og öll er framkoman hin vanstilltasta og er það að vonum; kattarkvik- indið lætur stjórnast af frumkenndum einum, að- gæzlan er engin, hún er burtnumin með heil- anum. Þótt það sé málvenja, að kveða svo á, að ein- hver verði viti sínu fjær af hræðslu, er næsta sjaldgæft, að svo sé, ef raunverulegan háska ber að höndum, og þá venjulega því aðeins, að ó- kunnur voði steðji óvænt að. Langsamlega flest- 12 MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.