Melkorka - 01.05.1944, Qupperneq 23
foreldranna minnkaö. Má ef til vill segja hér sem
oftar, að það er skammt öfganna á milli, því að
nú þykir sumum, sem það séu stundum öllu held-
ur börnin, sem ráða á heimilunum og séu for-
eldrarnir ofurliði bornir. Kemst þó vonandi jafn-
vægi á, þegar stundir líða og menn hafa betur
áttað sig á því, sem gerzt hefur.
Það liggur í augum uppi að vegna þeirra fé-
lagslegu þróunar, sem átt hefur sér stað í heim-
inum, hlýtur þjóðfélagið óhj ákvæmilega að taka
á sig ábyrgðina á uppeldi æskulýðsins og hafa
jafnvel eftirlit með því á heimilunum. Heill og
velferð þj óðfélagsins veltur algerlega á því,
hvernig þegna það skapar sér. Barnið og ung-
lingurinn er sá leir, sem það á að mynda og móta
úr: farsælt þjóðfélag, farsæla þegna, en þetta
tvennt hlýtur að fara saman.
Ég hef hér haldið fram rétti þjóðfélagsins til
afskipta af málefnum einstaklingsins, en réttin-
um fylgja vitanlega gagnkvæmar skyldur. Hvert
barn, sem þjóðfélaginu fæðist, á heimtingu á því,
hverjir svo sem foreldrar þess eru, að fá að njóta
þess uppeldis að hæfileikar þess fái notið sín.
Til þessa má þjóðfélagið ekkert spara. En þetta
hefur aftur í för með sér að ekki er hægt að láta
staðar numið við skólagöngu barna frá 7—14
ára. Barnið þarf skóla áður en það er 7 ára og
námi þess getur á engan hátt verið lokið við 14
ára aldurinn. Næstu ár þar á eftir ættu einmitt
eingöngu að vera helguð einhverju námi og ekki
vera reiknað með að unglingurinn fari að vinna
fyrir sér fyrr en í fyrsta lagi við 16 ára aldur-
inn. Hér bíða því hins íslenzka þjóðfélags óleyst
verkefni, sem mikið veltur á, hvernig til tekst
með. Það er ekki hægt að láta það afskiptalaust,
hvers konar æska það verður, sem erfir þetta
land, og þar berum við sem vaxin erum alla á-
byrgðina.
„— og námi Jiess getur á
engan hátt verið lokið við
14 ára aldurinn.“ — Margir
vilja nú lengja slcólaskyld-
una upp í 16 ár, miða tvö
síðustu árin við jjað, að
láta börnin kynnast ýmsum
starfsgreinum, og gera þeim
þannig euðveldara að velja
lífsstarf við hœfi sitt og
getu. — Myndin er frá
amerískum slcóla og sýnir
dreng við járnsmíðar, stúlk-
ur á tilraunastofu og lesandi
unglinga
MELKORKA
19