Melkorka - 01.05.1944, Síða 32

Melkorka - 01.05.1944, Síða 32
dauða föður míns og varð því ekki úr förinni. En voriS 1904 hélt móSir mín til útlanda og ferSaS- ist þá um NorSurlönd og kynntist þar ýmsum hinum merkustu konum, einkum í SvíþjóS. — Kynntist hún þar Ann Margrét Holmgren, pró- fessorsfrú, er var einn helzti brautrySjandi kven- réttindahreyfingarinnar í SvíþjóS og var á sí- feldu ferSalagi um landiS til þess aS halda fyrir- lestra um kvenréttindi og stofna kvenréttindafé- lög. Hélzt meS þeim vinátta alltaf síSan meSan þær lifSu báSar. Þá var alþjóSasamband kvenréttindafélaganna (kosningaréttarfélaga kvenna) nýstofnaS. HafSi þaS veriS stofnaS fyrst í Washington áriS 1902 af Susan B. Anthony, en fyrsti eiginlegi stofn- fundur félagsins var haldinn í Berlín áriS 1904 og bundust þá samtökum þessi lönd: SvíþjóS, Noregur, Danmörk, England, Holland, Þýzka- land, Bandaríkin og Nýja Sjáland, en nokkru síSar bættust viS Austurríki, Italía og Frakk- land. I júní, 1905, er birt í KvennablaSinu bréf frá danskri konu, frú Jóhönnu Miinter, sem harmar þaS aS hafa ekki vitaS um komu móSur minnar til Kaupmannahafnar haustiS áSur, því aS hún hefSi viljaS tala viS hana um þetta nýstofn- aSa samband og skorar á ísland aS stofna kven- réttindafélag og taka þátt í sambandinu sem sér- stakt land. Frú Jóhanna Munter var gift dönskum sjóliSsforingja, Kommandör Múnter, og hafSi fariS víSa um lönd. Hún var gáfuS kona og góS- viljuS og menntuS vel, mun hún hafa veriS ritari hins danska kvenréttindafélags og sendi hún for- manni alþjóSasambandsins, frú Chapman Catt, heimilisfang móSur sinnar. SkrifaSi frú Catt móSur minni eftir þetta mörg bréf og hvatti hana til þess aS koma á kvenréttindafélagi, þótt ekki væri nema smádeild, og gengi þaS síSan í al- þjóSasambandiS. Ein af hinum dönsku forvígis- konum, frú Lund, formaSur kvenréttindafélags- ins „Hringurinn“ (félags listakvenna og rithöf- unda) kom nú upp meS þaS, aS ísland ætti aS ganga í félagiS sem ein af hinum dönsku deild- um, í sambandi viS aSaldeildina dönsku. Segir svo í KvennablaSinu, 31. apríl, 1906, um þessa uppástungu: „Frú Jóhanna Múnter mótmælti því og kvaS Island eiga aS ganga í félagiS sem sér- stakt land, en ekki sem nein undirdeild eSa hjá- lenda. Mrs Chapman Catt skrifaSi frú Múnter og kvaS þaS ekki koma til mála aS ísland gengi í sambandiS sem hluti af Danmörku. „ViS gætum þá alveg eins vel neitaS aS taka Canada eSa Ástralíu eSa Ungverjaland inn í félagiS sem sér- stakt þjóSfélag, en þaS höfum viS þó ekki gert.“ Frú Múnter segir í bréfi til B.B. aS Mrs. Chap- man Catt hafi fariS svo hörSum orSum um þessa dönsku tillögu, aS hún hafi ekki ennþá þoraS aS lesa bréfiS upp á fundi í danska kj örréttarfélag- inu.“ SumariS 1906 var sambandsfundur hins al- þjóSIega kj örréttarfélags kvenna haldinn í Kaup- mannahöfn. Munu þá enn hafa komiS fram í Danmörku raddir, sem vildu koma í veg fyrir sjálfstæSa þátttöku íslands og mæltu meS því, aS íslenzkum konum, búsettum í Kaupmannahöfn, yrSi boSiS aS sitja fundinn fyrir íslands hönd. -— En Mrs. Catt vildi ekki annaS heyra en ís- lenzk kona, heiman aS frá íslandi sjálfu, yrSi boSin. Fékk þá móSir mín formlegt boS aS fara á fundinn og var boSiS a$ taka meS sér 1—2 konur. Skrifar hún þá grein um þetta í Kvenna- blaSiS og skorar á kvenfélög aS taka þetta mál til íhugunar, ef unnt væri aS koma á fót félags- deild í þessum tilgangi. Hún lýkur þannig máli sínu: „Þótt þessi samtök fari hægt í fyrstu og séu lítilsvirt, þá eykst þeim þróttur meS félags- skapnum, svo á endanum munu þau rySja öll- um varnargörSum heimskunnar úr vegi og skipa konunni þaS sæti, sem henni ber meS réttu: aS vera jafningi og félagi karlmannsins, hvort sem þaS er heldur sem húsmóSir á heimilinu, eSa sem borgari í þjóSfélaginu.“ MóSir mín sótti fundinn í Kaupmannahöfn og fékk þar réttindi sem fulltrúi, þótt ekki væri ís- land gengiS í sambandiS. Hélt hún þar fyrirlest- ur um kvenfélög á íslandi, flutti skýrslu frá ís- landi, eins og gert var frá öSrum löndum, sem í sambandinu voru og flutti ræSu í skilnaSarhóf- inu, er hún var kölluS fram til aS tala fyrir hönd lands síns, eins og aSrir fulltrúar. Þegar móSir mín kom heim tók hún strax aS beita sér fyrir því aS stofnaS yrSi kvenréttinda- félag. Fékk hún í liS meS sér merka konu, sem 28 MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.