Melkorka - 01.05.1958, Blaðsíða 23
inn er í sniðinu rúmur yfir brjóstið, fellur
beinn niður, snertir lauslega mjaðmir en
þrengist um hné. Pilsið er stutt, nær rétt
niður fyrir hné, enda ekki lijá því komizt
við þennan kjól, ella væri erfitt um gang.
Pilsin liafa raunar stytzt almennt.
Nú er svo komið að flestar konur hér í
Reykjavík, a. m. k. ungu stúlkurnar, eru
farnar að kunna vel við nýju línuna. Poka-
kjóhinn er þægileg flík og venst vel, og
hefur auk þess til síns ágætis, að hann er
vel fallinn bæði fyrir grannar og feitlagnar
konur. Hann getur dregið úr ýmsum h'k-
amsgöllum og getur jafnframt undirstrik-
að fagrar línur líkamans. Því eins og skáld-
ið sagði: „Fegurð hrífur hugann meira, ef
hjúpað er, svo andann gruni ennþá fleira en
augað sér“. Reynslan er sú í verzlunum
okkar, að fáist konan til að máta jaessa
kjóla, þá er hún fljót að draga til baka for-
dóma sína.
Þá eru önnur afbrigði af þessari nýju
tízku. „Brag“línan, sem einkum er notuð
í samkvæmis- og síðdegiskjólum. Kjóllinn
fellur að eftir brjóstlínunni og er aðskor-
mn í mittið, en rykkingar koma fram í
baki eða frá mitti og þá jafnframt í pils-
faldi, þannig að hreinn poki myndast. Enn
er ný lína „Trapeze". Þar kemur útsnið
frá öxlum og niður, kjóllinn er mjög víð-
ur að neðan.Trapezelínan hefur ekki kom-
tð fram liér á landi, en ýmsir spá að hún
tnuni ekki verða langlíf, vegna þess að hún
er erfið og dýr í útfærslu.
Þrátt fyrir þessar nýju línur, getum við
enn leyft okkur að ganga í hinu gamla
klassiska sniði, með mittið á réttum stað,
°g verið samt í tízkunni. En livað framtíð-
tn ber í skauti, þori ég engu að spá um,
kannske eigum við eftir að fá „Sputnik“-
línu, eða guð má vita hvað.
Þ. E.
„Bag"-línan
ÚliLKORKA