Melkorka - 01.11.1958, Page 3

Melkorka - 01.11.1958, Page 3
MELKORKA TÍMARIT KVENNA Ritstjórn: Namia Ólujsdóltir, ReykjahliÓ 12, Reykjavik, simi 11156 . Þóra l'igfúsdóttir, Þingholtsstrœti 27, Rvik, simi 15199 Útgcfandi: Mál og menning HERNÁM OG LANDHELGI Eftir Nönnu Ólafsdóttur. Val'alaust hafa einhverjir trúað því 1949, er við gengum í Atlanzhafsbandalagið, að það yrði okkur vörn gegn árás óvina, e£ við eignuðumst einhvers staðar slíka. Það sjón- armið var túlkað af geysilegum krafti, og einnig samstaðan með „vestrænum" þjóð- tun, ,, 1 ýðræðisþjóðunum“, og hvað þau nú kalla sig nýlenduveldin, sem mynda kjarna þess hernaðarbandalags, sem kennir sig við Atlanzbafið. Það lá svo mikið á að ganga í Atlanzhafs- bandalagið, að þingmennirnir fengu ekki einu sinni svigrúm að átta sig, og þá gafst þjóðinni ekkert tóm til umræðu um málið. brír ráðherrar, einn úr hverjum flokki, Sjálfstæðisfl., Framsóknarfl. og Alþýðufl., llugu vestur til Bandaríkjanna, og hefur ís- lenzkum embættismönnum aldrei legið svo tuikið á í erindum fyrir ísland. Þeir komu aftur með þau skilaboð, að þeir í Washing- ton viðurkenndu, að ísland hefði ekki her og ætlaði ekki að stofna hann. Ennfremur, að ekki kæmi til mála, að erlendur her eða berstöðvar yrðu á íslandi á friðartímum. Sumir treystu þessum orðum, aðrir ekki. Það kom líka brátt í ljós, er við höfðum gengið í bandalagið, að skilning okkar á bugtakinu friðartímar mátti draga í efa. Okkur var m. a. segja gert skiljanlegt (af toELKORKA vinunum fyrir vestan), að mjög væri hæpið að friðartímar yrðu nokkru sinni staðreynd í þessum heimi. Svona mikilvæga þekkingu hefðum við líklega aldrei öðlazt nema með þátttöku okkar í hernaðarbandalaginu lræga. Og ekki voru liðin nema tvö ár frá inngöngu okkar í bandalagið á þeim for- sendum, að við hefðum ekki her og ætluð- um ekki að stofna hann né að leyfa her eða herstöðvar í landinu á friðartímum, er er- lendur her liafði setzt að í landinu, með samþykki meirihluta aljringis. Þetta gekk göldrum næst. Það var stríð hinum megin á hnettinum, í Kóreu. Þar áttu hlut að máli sálufélagar okkar í hernaðarbandalaginu. Síðan hafa þeir sífellt átt í stríði einhvers staðar á afmörkuðum svæðum, Viet-Nam, Alsír, Kýpur, Kenya, Egyptalandi, víða í Suður-Ameríku, og svo „undarlega“ vill til, að einmitt bandalagsríki okkar stunda þessi J^rotlausu stríð og alltaf af eiginhagsmuna- ástæðum, vegna ásælni í auðlindir annarra ríkja eða togstreitu að halda valdaaðstöðu í löndum annarra Jajóða. Nú hefur eitt }:>ess- ara nýlenduvelda, „vestræn vinajjjóð", og félagi í hernaðarltandalaginu, snúizt gegn sjálfum okkur, og hyggst hún ræna okkur fiskimiðum okkar. Önnur „vinaþjóð", sem situr með her sinn í landi okkar, horfir að- 75

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.