Melkorka - 01.11.1958, Síða 5
í hundrað ára minningu Selmu Lagerlöf
Eftir Ingu Þórarinsson
Hinn tuttugasta nóvember 1858 fæddist
Selma Lagerlöf á óðalinu Márbacka í
Vermalandi. Foreldrar hennar voru Erik
Gustaf Lagerlöf og Louise Wallroth. Faðir-
inn var, að sögn Selmu, glaðlyndur maður
og skemmtinn. Löjtnant Lagerlöf var þar að
auki gestrisinn og gefinn fyrir veizlur og
gleðskap. Móðirin var vinnugefin og skyldu-
rækin, dóttir nýríks iðjuhölds. Selma Lager-
löl' gat rakið ættir sínar til sænskra stór-
skálda eins og Tegners og Geijers og lengra
fram til Önnu Maríu Lenngren. Hún var
einnig skyld Fröding. Þau hittust einu sinni
í boði með öðru æskufólki, en virðast ekki
hafa haft áhuga á að stofna til neinna
kynna. Sem barn var Selma sú óásjálegasta
í hópi systkina sinna, liún var fædd með
mjaðmargalla sem gerði liana halta ævilangt
og olli þjáningum, ef hún ofreyndi sig. Fað-
ir hennar var allsráðandi í fjölskyldunni, og
börnin lærðu snemma að taka tillit til óska
hans. Selma lærði ung þá list að hafa stjórn
á sjálfri sér. Þegar hún var um fermingu, fór
mjög að síga á ógæfuhlið fyrir löjtnant Lag-
erlöf. Hinar djörfu áætlanir hans að nota
peninga konu sinnar til að breyta litla, vina-
lega búgarðinum liöfðu misheppnazt. Hann
var farinn að heilsu, reyndi að halda við
glaðlyndi sínu með brennivíni og skipaði
kvenfólkinu og börnunum að vona hið
bezta, þótt framtíðarhorfurnar væru skugga-
legar.
Selrna vissi, að hún bjó yfir hæfileikum til
að hjálpa fjölskyldu sinni. Hún vildi verða
rithöfundur. Þegar hún var lítill krakki og
gat ekki tekið þátt í leikjum hinna barn-
anna, hafði hún átt margar ógleymanlegar
stundir hjá ömmu sinni, sem sagði henni
Melkorka
Selrna Lagerlöj.
kynstrin öll af sögum, er síðar urðu henni
ómetanlegur brunnur hugmynda og anda-
giftar. Snennna liafði Selma sýnt að hún gat
ort kvæði við hátíðleg tækifæri, og mönnum
var ljóst að þessi litla, halta og óásjálega
stúlka sem sat og vermdi sætið sitt á fjöl-
skyldudansleikum var gædd óvenjulegum
gáfum. Fjölskylduráðið ákvað að Selma
skyldi fara í skóla og verða kennslukona.
Árið 1885 fékk hún stöðu við stúlkna-
menntaskólann í Landskrona, og þar var
hún kennslukona í tíu ár. Hún stundaði
77