Melkorka - 01.11.1958, Qupperneq 24

Melkorka - 01.11.1958, Qupperneq 24
Helryk af kjarnasprengingum fellur á ísland Að því cr til íslands kemur sérstaklega, liggja fyrir uppiýsingar um það, að við liöfum fengið okkar skammt af helrykinu frá kjarnasprengingum stórveld anna. Vorið 1957 efndi kjarnorkunefnd Bandarfkjanna til opinberra víðtækra rannsókna á, live mikið inagn af helryki hefði fallið til jarðar á ýmsum stöðum á hnett- inum. Við vitnaleiðslur kjarnorkunefndar Bandaríkja- Jrings í Washington, Jrar sem fjöldi vísindamanna gerði grein fyrir rannsóknum sínum og ályktunum af Jrcim, voru lögð fram gögn, sem eru sérstaklega athyglisverð fyrir okkur íslendinga. I'að kom á daginn, að kjarnorkunefnd Bandaríkjanna hefur látið gera mælingar, sem sýna, hversu mikið ntagn af strontium 90 hcfur fallið til jarðar liér á landi sfðustu árin. Niðurstaðun aj þessutn mælingum er, að meira strontium 90 hafði fallið til jarðar á íslandi fram til júníloka 1956 en á nokkrum öðrum stað við Atlanz- Tertubotnar sem geymast vel 3 egg 200 gr sykur y4 dl — 3 matskeiðar lieitt vatn 150 gr hveiti 114 ttskeið lyftiduft Eggin Jrcytt ásamt helmingnum af sykrinum. Hveiti og lyftiduft látið saman við og Jreytt vel. Vatnið og hinn helmingurinn af sykrinum látið í síðast. Döðlukökur 1/2 bolli smjörlfki y bolli sykur 1 cgg 2 bollar sáldað hveiti 1/2 bolli mjólk 2 matskeiðar kakó I teskeið vanilla y bolli skornar döðlur heytið smjörlíkið og bætið sykrinum í smásaman, en sfðan egginu og hrærið vel. Þá er hveiti og kakó blandað saman og hrært út í ásamt mjólk og vanillu- sykri. Döðlunum er velt upp úr hveiti og settar saman við. Deigið er látið á smurða plötu með teskeið. Kök- urnar eru bakaðar við 175 stiga liita f 12—15 mínútur (40 smákökur). haf, þar sem hliðstæðar mælingar hafa verið gerðar og niðurstöður birtar. Á íslandi höfðu fallið til jarðar 17 millikúrí af strontium 90, en millikúri er mælieining, sem noluð er við geislunarmælingar. Á korti, sem vís- indamenn kjarnorkunefndarinnar lögðu fyrir banda- rísku þingnefndina og mynd birtist af í LIFE, sást, að næsti mælingarstaður með jafnháa tölu eða hærri er við Miðjarðarhafsbotn (19 millikúrf). Þessi ískyggilega niðurstaða kemur heim við vitnis- burð bandarísks veðurfræðings, dr. Lesler Machta, sem starfar á veðurstofu Bandaríkjanna. Kvað hann þá kenningu afsannaða, að geislavirkt ryk breiddist nokk- urn veginn jafnt út um hnöttinn. I>að væri komið á daginn, að straumar í liáloftunum hrúguðu pvi samati yfir tempraða beltinu á norðurhveli hnattarins, og þar félli það til jarðar i mun rikara mœli en annars staðar. betta þýðir, að geislunarhættan er mest á þéttbýlustu svæðuni jarðarinnar, i Norður-Ameríku, Evrópu og Austur-Asíu. Til þessa munu margir Islendingar hafa talið, að lielrykið og hœtlurnar, sem þvi eru samfara, vœru enn sem komið er einkum bundnar við Kyrrahaf og löndin sem að Jrví liggja. Mælingar Bandaríkjamanna hér á landi sýna, að helrykið sneiðir síður en svo hjá dyrum okkar. I>að er meira að segja nærgöngulla við okkur en nágranna okkar báðum megin Atlanzhafsins. Kjarn- orkusprengingarnar og afleiðingar Jreirra snerta hvern einasta Islending, heilsu hans sjálfs og framtíð barna huns. / viðureign manhynsins við helrykið erum við i fremstu víglinu, hvort sem okltur líkar betur eða verr. — Ug öll teikn eru á lofli um það, að i þvi efni sé ekki góðs að biða. Frá Jrví að fyrrnefndar rannsóknir voru gerðar, hefiir lilraunum með kjarnasprengjur verið haldið linnulaust áfram og geislaverkunin því aukizt að sama skapi. Aukningin hefur ekki verið rannsökuð hér, en niður- stöður nágranna okkar sýna hvert stefnir. Þannig stað- festi brezka kjarnorkumálanefndin í aprfl s. 1„ að magn geislavirkra efna i efri loftlögum yfir Bretlandi hafi u. þ. b. tifaldazt upþ á síðkastið. Um svipað leyti ti 1 - kynnti rannsóknarnefnd sænska hersins, að geislaverkun yfir Norðurlöndum hefði mjög aukizt. Úr Triðlýsl land. 96 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.