Melkorka - 01.12.1959, Side 21
Köflótt herðasjal
Þetta sjal er fyrst heklað í einföklu munstri, síðan er
drcgið í garn langsum. Notið frekar þykkt garn; þrjú
bil í munstri og þrjár umferðir eiga að mælast 2,5 sm.
á hvora hlið, en stærð sjalsins verður þá 75 sm. á
breidd, 175 sm. á lengd, án kögurs.
Heklunál nr 2i/2, garn: litur A — 225 gr. (9 únsur),
B — 255 gr. (9 únsur), C — 56 gr. (2 únsur). Það mætti
t. d. hafa dökkgrænt, brons og svart garn, en litirnir
verða auðvitað að samsvara litum kjólsins, sem á að
nota sjalið við.
Byrjið á því að hekla 166 keðjulykkjur (KL). 1. umf.:
1 hálfstuðull í 6. KL frá nálinni (hálfstuðull (hst):
bregðið garninu urn nálina, stingið nálinni í gegnum
KL, bregðið um nálina og dragið garnið í gegnum allar
þrjár lykkjur í senn), *1 KL, hlaupið yfir 1 lykkju, 1
hst i næstu KL*, endurtakið frá * til *, 4 KL, snúið
við (81 bil). 2. umf.: hlaupið yfir 1 lykkju, * 1 hst í
næstu hst, 1 KL *, endurtakið og endið á 1 hst í aðra
KL, 4 KL, snúið við. Haldið áfrarn að hekla 2. umferð.
Röðun litanna: 4 umferðir með lit A, 1 með B, 4 með
A, 4 með B, 1 með C, 4 með B. Heklið þessar 18 um-
ferðir alls 11 sinnum, þvf næst 4 A, 1 B, 4 A. Slítið
bandið.
Pressið sjalið vel og leggið það flatt á borð. Tak-
ið 4,5 metra langan spotta, hafið hann tvöfaldan og
dragið hann i sjalið næst jaðrinum með því að stoppa
upp og niður í bilin; hafið jafnlanga spotta afgangs
í hvorn enda. Litirnir eins og áður. Búið til kögur
með því að hnýta spoltana, 10 við jaðrana, annars 8.
Jafnið endana.
MELKORKA
85