Valsblaðið - 01.05.2005, Page 11
Hefðbundið starí
Tvennt stendur upp úr í afreksstarfi Vals
á þessu ári.
Annars vegar frammistaða meist-
araflokks karla í knattspymu. Liðið
vann sér sæti í úrvalsdeild í fyrra og
náði þeim frábæra árangri í sumar undir
stjórn Willums Þórs Þórssonar að verða
í 2. sæti íslandsmótsins og bikarmeist-
arar. Þetta er fyrsti stóri titill Vals í karla-
knattspyrnunni síðan 1992 þegar Valur
varð síðast bikarmeistari. Þessi árangur
er gott veganesti til að festa liðið aftur í
sessi meðal bestu knattspyrnuliða lands-
ins. f ljósi árangurs þessa árs er aðeins
eitt markmið eftir, fslandsmeistaratitill,
en menn verða að gera sér ljóst að það
þarf e.t.v. meira en eitt keppnistímabil til
viðbótar til að ná því markmiði.
Hins vegar er einstök frammi-
staða kvennaliðs Vals í knattspyrnu í
Evrópukeppni meistaraliða. Því miður
rættust ekki væntingar um titla í íslands-
eða bikarkeppni sl. sumar en stelpurnar
bættu það upp með frábærri frammistöðu
í Evrópukeppninni þar sem þær komust í
8-liða úrslit, sem er einstakur árangur.
Að venju var íþróttamaður Vals val-
inn á gamlársdag. Berglind Hansdóttir,
markvörður m.fl. kv. í handknattleik fékk
heiðurstitilinn íþróttamaður
Vals árið 2004 en hún átti
frábært keppnistímabil,
sem hún kórónaði með eft-
irminnilegri frammistöðu í
úrslitarimmu Vals og ÍBV um
íslandsmeistaratitilinn vorið
2004.
Vórgleði Vals var haldin
í stóra íþróttasalnum í byrj-
un mars sl. í annað sinn.
Veislustjóri var Jón Olafsson
sem fyrr og Sálin hans Jóns
míns lék fyrir dansi undir
stjóm Valsmannsins Stefáns
Hilmarssonar. Vorgleðin tókst
enn og aftur frábærlega vel
og er að festa sig í sessi sem
ómissandi þáttur í félagsstarf-
inu.
Sumarbúðir í borg gengu
mjög vel að þessu sinni eins
og í fyrra. Var góð rekstraraf-
koma af sumarbúðunum í ár
eins og áður.
Herrakvöld Vals var á sínum
stað fyrsta föstudag í nóv-
ember. Hermann Gunnarsson
var veislu-
stjóri sem
fyrr og fjölmiðlamað-
urinn Gísli Einarsson
ræðumaður kvöldsins.
Um 200 gestir sóttu
herrakvöldið að þessu
sinni.
Valsblaðið kemur nú
í þriðja sinn út undir
stjórn ritstjórans Guðna
Olgeirssonar. Metnaður
Guðna fyrir hönd
blaðsins er mikill og
er það nú allt litprent-
að. Guðni hefur staðið
sig með eindæmum vel
og vonandi njótum við
Valsmenn starfskrafta
hans sem lengst.
I samvinnu við
Valsmenn hf. stend-
ur nú yfir átak til að
bæta skráningu félaga
í Val og fjölga skráð-
um félögum. Eg skora
á Valsmenn að taka þátt
í þessu átaki með því
að kanna hvort þeir séu
ekki skráðir félagar og
skrá sig, ef svo er ekki,
auk þess að gefa ábend-
ingar um aðra, sem vilja leggja Val lið
sem skráðir félagsmenn.
Lokaorð
Við Valsmenn lítum björtum augum til
næsta árs, 95 ára afmælis Vals, og fram-
tíðarinnar. Glæsileg mannvirkjauppbygg-
ing er hafin og það er gróska í félags-
starfinu.
Eins og fram kemur í þessari skýrslu,
er ótrúlega mikill fjöldi hæfra einstak-
linga, sem eiga það sameiginlegt að vera
Valsmenn. Þessir einstaklingar leggja
margir hverjir á sig mikið og óeigingjarnt
starf fyrir félagið og það skal þakkað.
Knattspymufélagið Valur býr að mik-
illi hefð sem eitt mesta afreksfélag
Islands í knattgreinum. Þessa hefð verður
að rækta. Allir Valsmenn eru hvattir til
að leggja félaginu áfram allt það lið sem
þeir mega.
Gleðileg jól með þökkum Jyrir samstarfið
á árinu sem er að líða.
Grímur Sœmundsen formaður.
íris Andrésdóttir gengur afleikvelli eftir síðasta leik sinn
hér á landi með Val eftir leik við Evrópumeistara Potsdam
á Laugardalsvelli 9. október 2005.
Valsblaðið 2005
11