Valsblaðið - 01.05.2005, Page 12
Viðurkenningar
íhróttamaður Vals
Það er árviss atburður hjá Val að útnefna
íþróttamann ársins í hófi að Hlíðarenda á
gamlársdag. íþróttamaður Vals er valinn
af formönnum deilda, formanni félags-
ins og Halldóri Einarssyni (Henson) sem
er gefandi verðlaunagripanna. Árið 2004
var valinn í 13. sinn íþróttamaður Vals.
Mikill fjöldi félagsmanna iagði leið sína
að Hlíðarenda á gamlársdag og þáði veit-
ingar í boði aðalstjómar.
Berglind íris Hansdóttir var krýnd
sæmdarheitinu Iþróttamaður Vals 2004.
Berglind er 23 ára gömul. Hún er uppalin
að Hlíðarenda og hefur stundað hand-
knattleik með Val frá 12 ára aldri, alla tíð
sem markvörður. Hún spilaði með Val
gegnum alla yngri flokka og lék 30 leiki
með unglinga- og ungmennalandsliðum
Islands. Þá átti hún um síðustu áramót
30 leiki að baki sem markvörður íslenska
kvennaliðsins í handknattleik.
Berglind var valinn besti markmaður
Remax-deildarinnar á síðustu leiktíð og
lék lykilhlutverk í liði Vals sem tapaði
með naumindum í fimm leikja úrslita-
rimmu við ÍBV vorið 2004. Berglind er
nú fyrirliði kvennaliðs Vals í handknatt-
leik. Valsblaðið óskar Berglindi innilega
til hamingju með titilinn.
Grímur Sæmundsen formaður Vals hélt
ávarp við þetta tækifæri og sagði m.a.:
„Valur keppti til úrslita um íslands-
meistaratitil kvenna við ÍBV í maí sl. Er
það í fyrsta skipti sem Valsstúlkur ná svo
langt eftir að úrslitakeppni var komið á
í kvennahandknattleik. Rimma Vals og
ÍBV var æsispennandi eins og öllum
landsmönnum er í fersku minni, en sjón-
varpað var beint frá öllum leikjunum og
var þetta sjónvarpefni með ólíkindum
vinsælt. Má segja að þjóðin hafi verið
límd við skjáinn á meðan þessir leikir
fóru fram. Við Valsmenn fundum sterkt
fyrir því að frábær frammistaða Vals-
stúlkna gegn útlendingahersveit ÍBV afl-
aði þeim og Val stuðnings langt út fyrir
raðir félagsins og vakti verðskuldaða
athygli á Val, þrátt fyrir að íslandsmeist-
aratitillinn hafnaði ekki að Hlíðarenda.
Berglind var og er lykilmaður í
kvennaliði Vals og það er á engan hallað
þó að sagt sé að hún hafi átt mestan þátt
í frækilegri frammistöðu Vals, með því
að eiga stórkostlega leiki í úrslitakeppn-
inni sl. vor og þannig kórónað frábæra
frammistöðu sína á síðasta keppnistíma-
bili. Hún var að sjálfsögðu kjörin mark-
vörður ársins í lokahófi HSI sl. vor.
Berglind er glæsilegur fulltrúi Vals
og uppeldisstarfs félagsins á reykvískri
íþróttaæsku að Hlíðarenda."
Iþrottamaðup Vals - síðustu árin
2005
???
2004
Berglind íris Hansdóttir, handknattieikur
2003
íris Andrésdóttir, knattspyrna
2002
Sigurbjörn Hreiðarsson, knattspyrna
2001
Rósa Júlía Steinþórsdóttir, knattspyrna
2000
Kristinn Lárusson, knattspyrna
1999
Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir, knattspyrna
1998
Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleikur
1997
Ragnar Þór Jónsson, körfuknattleikur
1996
Jón Kristjánsson, handknattleikur
12
Valsblaðið 2005