Valsblaðið - 01.05.2005, Page 13
Félagsstarf
Stuðarakveðia
Baldur Rajhsson og Gestur Valur Svansson Stuðarar í banastuði fyrir bikarúrslitaleik-
inn við Fram sem Valsmenn unnu 1-0.
Kæru Valsmenn og Stuðarar
Við í stuðningsklúbbi Vals, Stuðurum,
þökkum kærlega fyrir árið sem er að
líða. Þetta er búið að vera frábært ár
fyrir okkur Stuðara. Það eru ekki allir
sem geta fagnað bikamum og öðru sæti
í deild. Besti árangur Vals síðan 1988 og
er það allt of langur biðtími fyrir veldi
eins og Val. Stemningin hefur vaxið
smátt og smátt síðan við félagamir stofn-
uðum Stuðaraklúbbinn í febrúar 2004
með nokkrum valinkunnum Stuðurum.
Markmið okkar var að endurvekja stemn-
inguna frá 1985-1990 sem fræg var orðin
og á hvers manns vömm. Klúbburinn
okkar allra hefur farið ört stækkandi frá
stofnun hans og bættust nú í sumar 84
nýir meðlimir. Félagsmenn Stuðara em
nú 150 talsins og stefnum við á enn frek-
ari fjölgun á næstu ámm. Stærsti munur
á okkur Stuðumm og öðrum stuðnings-
liðum er að við setjum það markmið að
styðja Val í heild sinni sem félag. Núna
nær stuðningurinn bæði til fótbolta
og handbolta en seinna meir munum
við tengjast öðmm deildum félagsins.
Þess má geta að Stuðarar mæta jafnt á
kvennaleiki og karlaleiki en ekki er hægt
að sjá slíkan stuðning hjá öðrum félögum
á Islandi. Kjarninn sem sér um stemn-
inguna á pöllunum fer ört stækkandi og
eru söngvar að ryðja sér til rúms í stúk-
unni og sífellt bætist í kórinn á pöllunum
sem og sambataktur Stuðara, en hann er
orðinn vel þekktur og hafa aðrir stuðn-
ingsklúbbar reynt hið sama með mis-
jöfnum árangri. Það gefur okkur mikið
að heyra þegar fólk tekur undir og einnig
hrós sem við höfum fengið. Nú er mark-
ið sett mun hærra en áður og munum
við mæta til leiks í sumar tvíefldir í
Laugardalinn og stemningin verður engu
öðru lík, og treystum við á aðra Valsara
að taka þátt í þessari skemmtun með
okkur.
DVD diskur um fotboltasumarið
2005 hjá Val
Stuðarar eru nú að leggja lokahönd á sitt
fyrsta stóra verkefni utan vallar og er
það DVD diskur sem er yfírlit frá síðasta
sumri og er það í fyrsta skipti sem félag
á Islandi gefur út DVD mynd um árangur
síns liðs. A diskinum er auðvitað fjallað
um bikarinn, deildina og Evrópukeppni.
Það er bæði fjallað um karla og konur.
Útgáfan er stór enda erum við stórhuga.
Þessi DVD mynd er skyldueign allra
Valsmanna og hvetjum við ykkur einn-
ig til að gefa vinum og vandamönnum
þennan disk við öll tækifæri því ekkert er
skemmtilegra en að sýna hvaða íslenska
lið er best. Með þessum orðum endum
við kveðju okkar þetta árið og óskum
Völsurum og Stuðurum nær og fjær
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
F.h. stjórnar Stuðara,
Gestur Valur Svansson formaður
Baldur Rafnsson meðstjórnandi
studarar@valur. is
Valsblaðið 2005
13