Valsblaðið - 01.05.2005, Page 14
Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði meistaraflokks karla í knattspyrnu
Sigurbjörn Hreiðarsson er eini núver-
andi leikmaður meistaraflokks karla
hjá Val sem hefur orðið tvisvar bikar-
meistari með félaginu, fyrst árið 1992
þegar Valur vann KA í framlengdum
úrslitaleik og aftur sumarið 2005. I
fyrri leiknum sat hann á bekknum
allan tímann en í sumar var hann fyr-
irliði og einn lykilmanna í Valsliðinu.
Sigurbjörn hóf feril sinn á Dalvík í
yngri flokkunum en hefur leikið með
Val frá 15 ára aldri utan eitt tímabil
sem hann reyndi fyrir sér í atvinnu-
mennsku hjá Trelleborg í Svíþjóð. í
þessu viðtali rifjar Sigurbjörn upp
ferilinn og ræðir opinskátt um skin og
skúrir hjá meistaraflokki karla hjá Val
á undanförnum árum.
Sigurbjörn undirritaði nýlega tveggja
ára samning við Val og markmið hans er
skýrt, þ.e. að landa íslandsmeistaratitli.
„Markmiðið er að halda sér í standi með
félagið í fyrirrúmi, ég er rétt þrítug-
ur í dag og á nóg eftir og vonast til að
geta spilað nokkur ár í viðbót á fullu.
Mitt markmið númer eitt, tvö og þrjú er
klárlega að vinna íslandsmeistaratitilinn
með Val, það á ég eftir,“ segir Sigurbjörn
ákveðinn. Hann telur alveg raunhæft að
Valur geti ógnað FH næsta sumar ef liðið
helst nokkurn veginn óbreytt og nokkrir
sterkir leikmenn komi til félagsins, þá
geti allt gerst. „Við fengum smjörþef-
inn af sigurtilfinningu í sumar við
að vinna bikarinn og auðvitað
langar okkur að halda áfram á
þeirri braut," segir Sigurbjöm
sposkur á svip.
Sigurbjöm segist vera lánsamur
maður, eiga stórkostlega og styðjandi
konu og tvær frábærar dætur, þriggja
og fimm ára. Hann er íþróttafræðing-
ur að mennt frá Laugarvatni, er grunn-
skólakennari í Lindarskóla og er í vetur
umsjónarkennari í 10. bekk og kann
rosalega vel við að kenna ungling-
um. Sigurbjöm Hreiðarsson fæddist í
Reykjavík 25. nóvember 1975 og flutt-
ist 8 ára til Dalvíkur með fjölskyldunni
Sigurbjörn Hreiðarsson í nýja keppnisbúningi Valsliðsins vorið 2005.
og bjó þar mótunarárin og telur sig
Dalvíking. Hann segir að umhverfið á
Dalvík sé æðislegt, æskufélagamir frá-
náttúran hafi verið
í leik og árin á
Dalvík hafi verið
afar góð. Hann
byrjaði að æfa
fótbolta með
V í k i n g i
en segist
þar hafa
verið C-
liðs maður.
Klaufdýrameistari
á Dalvík
Sigurbjöm segist hafa
byrjað á Dalvík á elsta ári
6. flokki og náð miklum
framförum í 5. flokki
en meistaraflokkur
Dalvíkur hafi þá verið
í 4. og neðstu deild og
V
SIEMEMs
örfáir fylgst með liðinu og aðeins var
verið með yngstu strákaflokkana upp í
3. flokk. „Á þessum ámm komst Dalvík
í 3. deild og áhugi jókst á fótbolta í
bænum. Kristinn Bjömsson, gamall og
góður Valsari, kom norður til að þjálfa
liðið og yngri flokkana og nánast allir
strákar á Dalvík fylgdust að og æfðu
fótbolta. Þór og KA voru stóm liðin fyrir
norðan á þessum tíma og við komum þar
á eftir en náðum aldrei að leika í úrslita-
keppninni um íslandsmeistaratitil, við
steinlágum alltaf fyrir þessum liðum frá
Akureyri. Við unnum yfirleitt svokölluð
klaufdýramót, en það vom innanfélags-
mót í sveitunum, unnum t.d. lið eins og
Æskuna, Árroðan og Framtíðina, við
kölluðum okkur klaufdýrameistara,"
segir Sigurbjöm og þykir greinilega
gaman að rifja upp þessi æskuafrek.
15 ána með unqlingalandsliðinu og
meistanaf lokki Dal víkun
„Árið 1989 var ég sendur sem fulltrúi
Dalvíkur í knattspymuskóla að Laugar-