Valsblaðið - 01.05.2005, Page 17
I faðmi fjölskyldunnar. Sigurbjörn
Hreiðarsson með Sonju Evu 3ja ára og
Bríet Pálsdóttir með Valdísi Björgu 5 ára.
sér standa, t.d. Islandsmótið innanhúss,
Reykjavíkurmótið og önnur svokölluð
karmellumót, við rúlluðum þeim upp. I
liðinu er mjög góð blanda yngri og eldri
leikmanna, gott jafnvægi og það er að
mínu mati lykilinn að ná góðri liðsheild.
íslandsmótið spilaðist þannig að fljótlega
kom í ljós að FH væri með sterkasta liðið
og þegar upp var staðið var ljóst að þeir
voru langbestir en við vorum langnæst-
bestir, en í bikamum vorum við lang-
bestir,“ segir Sigurbjöm glaðlega.
Bikarmeistarar 2005
„Við vomm gríðarvel stemmdir í bik-
arkeppninni. Eftir að við náðum að
vinna KR á útivelli í 8 liða úrslitum var
ég sannfærður að við myndum fara alla
leið. Stemningin í hópnum var frábær í
bikarnum og mikill vilji til að taka loks
eina stóra dollu að Hlíðarenda. Mér
fannst gnðarlega skemmtilegt að taka
þátt í úrslitaleik bikarkeppninnar í sumar
á móti Fram, maður var þátttakandi í
leiknum og gleðin yfir sigrinum var mun
meiri núna en 1992, maður upplifir meiri
gleði eftir að hafa verið þátttakandi í
leiknum," segir Sigurbjöm brosandi.
Atvinnumaður með Trelleborg
Sigurbjöm hefur einu sinni reynt fyrir sér
í atvinnumennsku en hann fékk 1999 til-
boð frá Trelleborg í Svíþjóð. „Útsendarar
sáu leik með mér og buðu mér út til
reynslu um haustið og voru það ánægðir
að þeir buðu mér samning. Ég flutti út í
janúar 2000 en gekk ágætlega í byrjun,
en varð fyrir því óhappi eftir stutta dvöl
hjá liðinu að lenda í ökklameiðslum
og missti af undirbúningstímabilinu,
æfingaleikjum og kom ekkert inn í liðið
fyrr en eftir að mótið byrjaði. Ég náði
aldrei að komast í það hlutverk sem upp-
haflega stóð til, en okkur gekk ágætlega
í deildinni, enduðum nokkmm stigum
frá Evrópusæti. Síðan urðu þjálfaraskipti
og ég endaði sem varabakvörður þegar
leið á undirbúningstímabilið og ég hugs-
aði með mér að ég nennti ekki að leika
í atvinnumennsku sem varabakvörður.
Ég ákvað því að fá mig lausan og koma
heim aftur til að spila fyrir Val sumarið
2001. Dvölin í Trelleborg var frábær og
ég bý að þeirri reynslu sem fótboltamað-
ur og sem persóna. Draumurinn um frek-
ari atvinnumennsku er ekki lengur til
staðar, ég vil frekar spila hér heima fyrir
Val og vinna titla með þeim. Ég myndi
hins vegar skoða málið ef freistandi til-
boð kæmu,“ segir Sigurbjörn.
Glæsileg uppbygging að Hlíðarenda
Nú er unnið að fullum krafti við upp-
byggingu nýrra húsa og valla að
Hlíðarenda.
„Aðstaðan verður frábær þegar upp-
byggingu verður lokið, öll aðstaða verð-
ur til fyrirmyndar, og svæðið hið glæsi-
legasta. A uppbyggingartímanum verður
að segjast eins og er að það verður erfitt
að markaðssetja félagið og halda aðdrátt-
araflinu í gangi. Það er ekkert spes að
vera með æfingar út um allan bæ, bæði
í meistaraflokknum og yngri flokkunum,
önnur lið hafa mörg núna mun betri
aðstöðu. Við verðum að horfa til þess
að toppaðstaðan kemur hjá okkur innan
tíðar, það þarf bara að þrauka þangað til.
Mér finnst mjög mikilvægt að lítið knatt-
hús rísi með yfirbyggðan gervigrasvöll
sem allra fyrst á Hlíðarenda, fyrir allt
uppbyggingarstarf hjá félaginu. Ég hef
ekki trú að við missum leikmenn eða
krakka í yngri flokkunum en markaðs-
starfið verður erfiðara þangað til ný
aðstaða verður tilbúin. Það er mikilvægt í
öllum flokkum að nýta Valsheimilið fyrir
félagsstarfið í flokkunum til að skapa
sem besta félagslega tengingu."
Kvennaknattspyrna og jafnrétti
„Við eigum að stefna að því að vera
alltaf bæði með kvenna- og karlaliðin á
toppnum, það er ekki spuming. Nú á ég
tvær ungar dætur og ekki vil ég að þær
fái minni alúð eða tíma en strákamir, það
er alveg á hreinu. Stelpumar hafa und-
anfarið verið flaggskip félagsins og það
má ekki gleyma því að þær hafa haldið
nafni félagsins á lofti undanfarin ár í fót-
boltanum," segir Sigurbjöm ákveðið.
Heilræði til íþróttamanna
Sigurbjöm á ekki í vandræðum með að
svara þegar spurt er um heilræði fyrir
yngri iðkendur. „Númer eitt er að halda
haus, ekki gefast upp þótt móti blási,
sýna dugnað og metnað á æfingum,
setja sér skýr markmið, hlusta á þjálf-
arana og bera virðingu fyrir samherjum
og andstæðingum og bera virðingu fyrir
félaginu," segir Sigurbjöm ákveðið.
Sigurbjöm segir að hann stefni að þjálf-
un að loknum ferlinum í knattspymu.
Væntingan um árangur
„Ef árangur á að nást þá þarf umgjörðin
að smella saman, þ.e. góður leikmanna-
hópur, færir þjálfarar, góð stjóm, frábærir
stuðningsmenn, við erum með þetta allt,
en ég sakna þess vissulega næsta sumar
að spila ekki á Hlíðarenda, þar finnst
mér alltaf best að spila. Það em sterkir
leikmenn að koma upp úr 2. og 3. flokki
og mikilvægt er að gefa ungum leik-
mönnum sem hafa alist upp hjá félaginu
tækifæri," segir Sigurbjöm sannfærandi.
Að mati Sigurbjöms em væntingar um
árangur miklar hjá Val, en það sé ekk-
ert sjálfgefið að árangur náist endalaust,
þótt félagið hafi mikla sigurhefð í gegn-
um tíðina. „Við höfum styrkar stoðir sem
halda félaginu gangandi bæði í meðbyr
og mótbyr. Styrku stoðimar felast ekki
bara í því að vinna titla, heldur í því að
lifa af þegar á móti blæs og rísa upp aftur
og það er einn meginstyrkleiki Vals,“
segir Sigurbjöm sannfærandi að lokum.
Sigurbjörn leikmaður 2.flokks karla
1994.
Valsblaðið 2005
17