Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 21
Eftir Guðna Olgeirsson
verkamaður í Álverinu í Straumsvík,
bensínafgreiðslumaður, hef unnið í lönd-
un, í málningarvinnu, við sorphirðu og
verið skiptinemi í Bandaríkjunum“.
Sterk tengsl milli Vals og Völsungs
„Tíminn hjá Völsungi spannar í raun öll
mín æskuár og allt fram yfir tvítugt. Ég
var alltaf mikið í kringum íþróttir. Pabbi
var lengi í stjóm knattspymudeildarinn-
ar og sat ég svo sjálfur í þeirri stjórn um
tíma. Það er alveg merkilegt hvað Valur
nær vel til fólks á landsbyggðinni og
þar er Húsavík engin undantekning.
Fólk sem búsett er úti á landi er mjög
gjamt á að halda með Val þegar þeirra
heimalið spilar í neðri deildum. Ég hélt
alltaf með Val sem bam og ungling-
ur, bæði í handbolta og fótbolta. Einnig
finnst mér mjög athyglisvert hversu
margir Völsungar og Húsvíkingar hafa
leikið með Val í fótboltanum undanfar-
in ár. I því samhengi má nefna Baldur
Aðalsteinsson, Sigþór Júlíusson, Guðna
Rúnar Helgason, Baldvin Hallgrímsson,
Benedikt Bóas Hinriksson og nú Pálma
Rafn Pálmason og Andra Val ívarsson.
Einnig er Húsvíking að finna í handbolt-
anum, markmanninn Pálmar Pétursson,
sem reyndar er bróðir minn. Ég held að
þetta sé engin tilviljun. Völsungarnir
sækjast einfaldlega í Val,“ segir Pétur
ákveðið.
Hvers venna sóttir þií um starf
íþróttafulltrúa?
„Ég tengdist félaginu ekki beint
þegar ég sótti um starfið. Ég hef að
vísu alltaf verið Valsari í mér og
svo er litli bróðir í handboltanum
hjá Val. Ég sá stöðuna auglýsta
og fannst starfslýsingin henta
mér vel. Þegar ég var barn og
unglingur léku flestir af mínum
uppáháldsleikmönnum með Val
bæði í handbolta og fótbolta fyrir
utan nafna minn Pétur Pétursson.
Ég leit mikið upp til íþróttamanna
eins og Guðna Bergs, Sævars Jóns,
Þorgríms Þráins, Geirs Sveins, Valda
Gríms, Óla Stef, Dags Sig og Eiður
Smári var auðvitað líka ákveðið
ædol þrátt fyrir að vera á
svipuðum aldri og
ég sjálfur.
Hann var
bara svo
hrikalega
góður þegar hann spilaði með Val 16 ára
gamall.“
Ýmis tækifæri bjóðast með betri
aðstöðu að Hlíðarenda
„Veturinn í vetur hefur verið nokkuð
erfiður hvað varðar aðstöðu og næst-
komandi sumar mun það sama verða
uppi á teningnum. Við leysum þó bara
þau vandamál sem upp koma og lítum
bjartsýn til framtíðar því stutt er í að
Valur geti hýst alla sína starfsemi að
Hlíðarenda við bestu mögulegar aðstæð-
ur. Samhliða bættri aðstöðu gefst okkur
kostur á að auka gæði íþróttastarfsins
á öllum aldursstigum sem væntanlega
mun skila sér í enn betri árangri og meiri
gæðum alhliða íþróttastarfs þegar til
lengri tíma er litið,“ segir Pétur einbeitt-
ur.
íþróttir eiga að byggjast upp ó
samblandi af keppm og félagslegum
þattum.
Pétur vill leggja megináherslu á félags-
legu gildin í yngstu flokkunum og til
að bömin öðlist þann áhuga sem til þarf
til að halda áfram íþróttaiðkun segir
hann mikilvægt að fyrstu kynni þeirra
af íþróttum séu jákvæð. „Mikilvægt er
að kenna bömum að taka bæði sigri og
ósigri og auk þess þurfa börn að læra að
bera viðingu fyrir íþróttinni og öllum
sem að henni koma, þjálfurum, andstæð-
ingum, áhorfendum
og síðast en ekki
síst dómumm.
Eftir 15-16
ára aldur
er æft með
keppnina
að leið-
arljósi en
til að ná
árangri í
hópíþrótt
ermikilvægt
að félagslega
hliðin sé ræktuð
og að iðkendur,
þjálfarar og for-
eldrar standi
og setji sér sameiginleg markmið,“ segir
Pétur ákveðið.
Forvarnargildi íþrótta
„Það hefur löngum sannað sig að fyrir
utan foreldra og fjölskyldu er reglubund-
in þátttaka í íþróttum besta forvarn-
arleiðin fyrir börn og unglinga. Þátttaka
í íþróttum leiðir af sér heilbrigt líferni
og jákvætt viðhorf gagnvart sjálfum sér.
Sjálfsmyndin styrkist og einstaklingur-
inn verður betur í stakk búinn til að taka
eigin ákvarðanir á ábyrgan hátt. Það er
engin tilviljun að virtar rannsóknir sýni
fram á mikið lægri tíðni vímuefnaneyslu
unglinga í íþróttum miðað við þá sem
ekki stunda íþróttir,“ segir Pétur og vill
hvetja sem flesta til að taka þátt í reglu-
bundinni íþróttaiðkun.
Valur á að vera þjonustuaðili fyrir
íbóa á skilgreinuu félagssvæði
„Ég tel að Valur hafi staðið sig vel í að
þjónusta börn og unglinga í hverfinu og
að þar hafi verið vandað til verks. Auk
þriggja vinsælla íþróttagreina býður
Valur upp á sumarbúðir og íþróttaskóla
fyrir yngstu bömin í hverfinu. I fram-
tíðinni vil ég samt sjá aukna áherslu á
almenningsíþróttir innan Vals. Við þurf-
um að nýta þá frábæru náttúru sem finna
má í kringum félagssvæði Vals og þau
tækifæri sem aðstaða okkar býður upp
á og í leiðinni fjölga virkum iðkendum
í félaginu. Ég vil að stofnaðir séu hópar
áhugafólks um almenna líkams- og
heilsurækt í nafni Vals. Umhverfið býður
upp á aðstöðu fyrir gönguhópa, skokk-
hópa, hjólahópa o.fl. Með þessu virkjum
við ekki aðeins börn og unglinga til þátt-
töku í íþróttastarfinu heldur einnig pabba
og mömmu, afa og ömmu og Valsara á
öllum aldri,“ segir Pétur.
Gott og metnaðarfullt samstarf
allra en lykilatriði
„Æfingin skapar meistarann en æfing-
in er ekki það eina sem til þarf. Til að
ná árangri þurfum við að hafa metnað
fyrir því sem við gerum, þurfum að vera
jákvæð og vinna sem hluti af einni heild.
Gott og metnaðarfullt samstarf iðk-
enda, foreldra, þjálfara og stjórnarmanna
félagsins auk jákvæðs andrúmslofts er að
mínu mati lykillinn að góðum árangri,
“ segir Pétur sannfærandi að lokum.
Valsblaðið 2005
21