Valsblaðið - 01.05.2005, Qupperneq 32
Evrópuævintýri IDBÍStaPðflOhkS
kvenoa í knattspyrnu í nnotskurn
Eftir Guðbjörgu Gunnarsdóttur markmann meistaraflokks
Finnland / Kokkola
Fyrsti leikur okkar í Evrópukeppninni var
9. ágúst og var hann á móti norsku meist-
urunum Röa Itrettslag. Fyrirfram bjóst
enginn við mikilli mótspyrnu frá okkur
enda vorum við mjög langt fyrir neðan
öll hin liðin á styrkleikalista sem UEFA
gaf út. Við vissum þó að við værum mun
sterkara lið en þessi listi gaf til kynna.
Leikurinn á móti Röa endaði 4-1 en
okkur þótti nokkuð líklegt að þær norsku
hefðu vanmetið okkur og skotið sig í fót-
inn þar. Þetta var opinn og skemmtilegur
leikur á að horfa, við nýttum færin okkar
en þær ekki og tölurnar segja sitt, 4-1
sanngjarn sigur.
FC United - Valur.
11. ágúst spiluðum við síðan við
heimastúlkur frá Finnlandi í FC United,
og þetta var án efa einn erfiðasti leikur
sem liðið hefur spilað. Við komumst í 2-0
og þær náðu að minnka muninn í 2-1 og
þar við sat. Seinni hálfleikur mun seint
talinn vel spilaður en hann einkenndist
alfarið af gríðarlegri baráttu og þvílíkri
samstöðu en leikurinn fór fram aftarlega
á okkar vallarhelmingi og börðumst við
eins og ljón þangað til dómarinn flautaði
af á 95. mínútu. Eftir leikinn var okkur
síðan sagt að við værum komnar áfram
vegna innbyrðis úrslita og gríðarlegur
fögnuður barst út hjá hópnum enda hafði
aldrei neitt íslenskt knattspymulið kom-
ist áfram í 16 liða úrslit.
Síðasti leikur okkar í Finnlandi var
13. ágúst á móti eistnesku meistumnum
Dóra María og Dóra Stefáns á flugi eftir
síðasta leik í Finnlandi.
Pamu FC sem var með áberandi slakasta
liðið í þessum riðli (þær vom samt fyrir
ofan okkur á þessum UEFA lista). Við
fómm mjög afslappaðar í þennan leik
en spiluðum fínan leik og unnum mjög
sannfærandi 8-1.
Síðasta deginum var síðan eytt í
Helsinki þar sem við fengum að versla
og hitta frægt frjálsíþróttafólk en HM í
frjálsum var í Helsinki á sama tíma.
Frábær ferð í alla staði og á þessum
tímapunkti höfðum við svo sannarlega
ekki hugmynd um að ævintýrið var bara
rétt að byrja. Unnar framkvæmdastjóri
hafði heitið á okkur að taka þátt í Idolinu
ef við kæmumst áfram en það klikkaði
víst eitthvað í skráningu!
Eftir síðasta leikinn í Finnlandi.
Svíþjóð / Eskilstuna
Andstæðingar okkar í næsta riðli voru
sænsku meistaramir Djurgárden / Alvsjö,
meistaramir frá Serbíu ZFK Masinac-
Classic Nis og meistarar Kazakstan
Alma. Þessi riðill fór fram í Svíþjóð,
okkur til mikilla ánægju, vomm ekkert
alltof spenntar fyrir að spila í Serbíu eða
Kazakstan. Maturinn var reyndar ekki
eins og við bjuggumst við og uppistaðan
í fæðu hópsins var brauð, kók og salat.
En það hafði ekki áhrif á spilamennsku
okkar.
Valur - Djurgárden.
Fyrsti leikurinn var 13. september á
móti heimaliðinu Djurgárden / Alvsjö.
Þær skoruðu fyrsta mark leiksins' og við
jöfnuðum fljótt leikinn með frábæm
marki og staðan var 1-1 í hálfleik. Seinni
hálfleikur var frekar tíðindalítill og fá
opin marktækifæri litu dagsins ljós.
Það var ekki fyrr en þegar leikklukkan
sýndi 92 mín. að sænski markahrókurinn
Viktoria Svensson náði að skora sig-
urmarkið eftir fyrirgjöf og var mjög mik-
ill rangstöðufnykur af þessu marki. Allir
gátu séð að þetta var ekki löglegt mark,
en svona er fótboltinn. 4. dómari leiksins
kom meira að segja eftir leikinn til þjálf-
arateymisins og baðst afsökunar á þessu.
Okkur finnst við enn hafa verið rændar
þessu jafntefli en við læmm á þessu og
2-1 tap var staðreynd.
Næsti leikur okkar var 15. september
á móti Masinac-Classic Nis frá Serbíu.
Fyrri hálfleikur gekk frekar brösuglega
og okkur gekk illa að fá marktækifæri,
þær fengu besta færi fyrri hálfleiksins en
hvomgt liðið náði að skora og í hálfleik
var staðan 0-0. Við náðum síðan að skora
32
Valsblaðið 2005