Valsblaðið - 01.05.2005, Qupperneq 33

Valsblaðið - 01.05.2005, Qupperneq 33
Ferðasaga snemma í seinni hálfleik eftir hornspymu og náðum síðan að bæta 2 mörkum við áður en leiknum lauk. 3-0 var niðurstað- an í góðum sigri. Það var ekki bara spilaður fótbolti. Daginn fyrir síðasta leikinn var síðan farið á McDonalds og hlaðið á orku- birgðir líkamans en fólk var orðið heldur þreytt á brauðinu og kókinu. 17. september var síðan síðasti leik- urinn en hann var á móti Alma frá Kazakstan, mjög mikill spenningur var í hópnum, okkur dugði jafntefli til að komast í 8 liða úrslit. Fyrri hálfleikur var hrein flugeldasýning, við komum svo ákveðnar til leiks að staðan var orðin 3- 0 eftir 7 mínútur og staðan í hálfleik var 5-0 og við nokkuð öruggar um að fara áfram þannig við tókum nokkur fögn að okkar hætti í hálfleik inn í klefa. Seinni hálfleikurinn gekk nokkuð erfiðlega og fékk Alma fjölmörg góð marktækifæri en náði ekki að koma boltanum í netið. I lok leiksins náðum við síðan að bæta við mörkum og leikurinn endaði 8-0 og fögn- uðum við að sjálfsögðu gríðarlega mikið í leikslok enda komnar í 8-liða úrslit. Sigurhringur í hálfleik enda staðan 5-0. Um kvöldið var síðan „lokahóf' hjá liðunum og þar fóru fram nokkrar vígslur og fleiri skemmtilegheit og tókst það allt stórvel. Mikið var talað um hvað við virtumst vera langskemmtilegasta liðið enda var aldrei þögn í kringum okkar lið á meðan maður leit yfir á borð hjá t.d. Serbunum að maður sá varla eitt bros á vör. Liðsheildin, leikgleðin og samstaðan í liðinu var án efa það sem skilaði okkur í 8 liða úrslit. Þegar við komum heim var móttökunefnd í Valsheimilinu sem tók á móti okkur með glæsilegum veitingum og hrósaði okkur fyrir frábæran árangur, og get ég sagt hér með að á þeim tíma- punkti hef ég aldrei verið eins stoltur Valsari. Valup - Potsdam Næsta verkefni okkar var að etja kappi við sjálfa Evrópumeistarana í 8 liða úrslitum en þær höfðu áður farið mjög sannfærandi í gegnum sinn riðil í keppn- inni. Undirbúningurinn fyrir leikinn var kannski ekki alveg eins góður og best væri á kosið, aðallega vegna kulda (enda kominn október) þreytu í mannskapnum, veikinda og smávægilegra meiðsla vegna álags. En það stoppaði okkur ekki í að fara í leikinn með engu öðru en sigur í huga og við ætluðum svo sannarlega að gera okkar besta. Hópmynd eftir œfingu fyrir Evrópuleik. Mikil eftirvænting var hjá okkur stelp- unum fyrir þennan leik og gistum við á Hótel Selfossi fyrir leikinn til að þjappa hópnum betur saman. Leikurinn byrj- aði svo sem ágætlega og var vel spil- aður af okkar hálfu í fyrri hálfleik þó svo að staðan hafi verið 1-2 í hálfleik fyrir Potsdam. Seinni hálfleikurinn var algjörlega þeirra og sáum við vart til sólar í honum. Margrét Lára var eig- inlega eini leikmaður liðsins sem náði sér á strik og stóð sig reyndar frábærlega, lék sér oft að vöm Potsdam og kom sér í mörg opin færi sem hún var óheppin að nýta ekki. Lokatölur voru 8-1 sem við viljum meina að hafi verið alltof stórar tölur miðað við gang mála. Eftir leikinn voru allir í hálfgerðu sjokki enda ekki á hverjum degi sem undirrituð hefur þurft að sækja boltann svo oft í netið, en þama gerðum við okkur ekki almennilega grein fyrir þvf að við áttum eftir að fara á útivöll Evrópumeistaranna til að reyna að rétta okkar hlut. Á þessum tímapunkti var augljóslega komin mikil þreyta í mannskapinn enda flestar okkar búnar að fara í fjölmargar keppnisferðir þetta árið. Þrátt fyrir það fómm við með því mark- miði að sigra, (við munum aldrei leggja í vana okkar að fara með annað markmið en sigur í leik) við höfum ekki áhuga á að spila leik og vinna með sem minnst- um mun eða „ná hagstæðum úrslitum". Það er ekki okkar leikstíll. Við fórum síðan til Þýskalands og fengum að njóta þess sem Berlín hefur upp á að bjóða, fórum í verslunarleið- angur og sýnisferð um borgina svona rétt áður en í alvöruna var farið og það var leikurinn. Þegar við mættum á leik- stað var þegar komið fólk í stúkurnar til að hvetja sitt lið til dáða, maður er ekki vanur því að hafa áhorfendur mætta meira að segja þegar maður fer út til að skoða völlinn! En þarna var rífandi stemning meðal áhorfenda. Það sem skemmdi augljóslega svolítið fyrir okkur var að við fengum á okkur mark, strax í byrjun leiks sem braut okkur mikið niður þar sem við ætluðum að sjálfsögðu að reyna að halda markinu hreinu. Eftir það var eiginlega bara ekki aftur snúið. Það mætti segja að við værum nánast áhorf- endur í eigin leik. Mörkin komu af öllum regnbogans litum, sum stórglæsileg þótt ég segi sjálf frá. Okkar hagur batnaði ekki þegar Margrét Lára fór út af tábrotin um miðjan fyrri hálfleik. Lokatölur urðu 11-1 eins og flestir vita. Þrátt fyrir þetta stórtap okkar á móti Evrópumeisturunum förum við allar sáttar frá keppni enda hefur ekk- ert íslenskt knattspyrnulið í sögunni náð jafnlangt í Evrópukeppni eins og við gerðum í sumar. Þetta mun nýtast okkur sent dýrmæt reynsla í framtíðinni og hafa opnað margar dyr og drauma fyrir leikmenn liðsins. Dæmi um það er Dóra Stefánsdóttir, sem er að fara til Svíþjóðar að reyna fyrir sér, og Margréti Láru var boðinn samningur frá Potsdam. Evrópukeppnin gaf mörgum okkar nýja sýn á kvennaknattspyrnu í Evrópu auk þess sem ég held að góður árangur okkar hafi verið fín auglýsing fyrir íslenska kvennaknattspy rnu. Við komum allar reyndari og betri leikmenn frá þessari keppni og getum sagt stoltar að við gerðum okkar besta sem skilaði okkur á topp 8 listann í Evrópu sem er betri árangur en okkur hefði nokkuð tímann dottið í hug áður en þessi keppni hófst. Valsblaðið 2005 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.