Valsblaðið - 01.05.2005, Side 42
Knattspyrniifélagið Valur stendnr
nú á þröskuldi nýrrar og hjartrar
framtíðar
flvanp Gníms Sæmundsen fonmanns Vals á háh'ðarsamkomu að Hlíðarenda 15. júní 2005
Frú borgarstjóri, Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, heiðursfélagar Vals, Jóhannes
Bergsteinsson og Sigurður Ólafsson,
ágætu Valsmenn, aðrir góðir gestir.
Eg býð ykkur öll velkomin til þessarar
hátíðarstundar að Hlíðarenda.
Við erum hér saman komin til
að kveðja þetta íþróttahús, þar sem
Valsmenn hafa lagt grunn að mörgum
íslandsmeistaratitlum í handknattleik
og síðan til að taka fyrstu skóflustungu
að nýju íþróttahúsi, sem verður glæsi-
legasta mannvirki til iðkunar handknatt-
leiks og körfuknattleiks á Islandi, þegar
það verður tekið í notkun haustið 2006.
Því húsi er ætlað að skapa Valsmönnum
og Valskonum bestu mögulegu aðstöðu
til margra sigra og íslandsmeistaratitla í
handknattleik og körfuknattleik á kom-
andi árum.
Segja má að aðdragandi þess, að við
stöndum hér í dag, séu viðræður fulltrúa
Vals og Reykjavíkurborgar um maka-
skipti á landi og framtíðaruppbyggingu
á Hlíðarenda, sem hófust snemma árs
2000. Skrifað var undir samning aðila
um þessa þætti á 91 árs afmæli Vals þann
11. maí 2002 og hefur síðan verið unnið
að framkvæmd hans. Kjarni samnings-
ins er, að Valur lætur af hendi land undir
nýja Hringbraut og önnur umferðarmann-
virki í kringum Hlíðarenda, og fær í stað-
inn byggingarrétt á 22500 m2 atvinnu-
og íbúðarhúsnæðis á Hlíðarendareit.
Andvirði þessa byggingarréttar, sem
nú hefur verið seldur Valsmönnum hf.,
hefur nú þegar að hluta verið nýttur til
greiðslu allra skulda félagsins, og mun
að hluta verða varið til uppbyggingar
nýrra íþróttamannvirkja að Hlíðarenda,
en að auki leggur Reykjavíkurborg fjár-
framlög til þessarar uppbyggingar.
Auk þess glæsilega íþróttahúss sem
við munum nú brátt taka skóflustungu
að, verður byggð hér viðbótartengibygg-
ing milli gamla íþróttahússins, sem vígt
var árið 1957, og þess nýja. Glæsileg
stúkubygging verður áföst nýja íþrótta-
húsinu, en nýr keppnisvöllur félagsins í
knattspyrnu verður þar sem malarvöllur
okkar er nú. Eru þessi mannvirki hluti
af þeim framkvæmdum, sem við munum
með táknrænum hætti hefja í dag. Gerð
nýrra grassvæða til knattpyrnuæfinga
stendur nú yfir og verða þau tilbúin til
notkunar vorið 2006. Gerð nýs keppn-
isvallar verður boðin út síðsumars og
verður því verkefni lokið haustið 2006
og hinn nýi keppnisvöllur tilbúinn til
notkunar sumarið 2007.
Síðast en ekki síst eru í gangi viðræð-
ur við borgaryfirvöld um, að í stað gervi-
grasvallar, sem var hluti þessara fram-
kvæmda og skyldi byggður við hlið hins
nýja keppnisvallar, komi knatthús. Er við
það miðað, að framkvæmdir við knatt-
húsið hefjist strax eftir áramót og það
verði tilbúið til notkunar haustið 2007.
Eru aðilar vongóðir um, að það takist að
ljúka samningum um þessa framkvæmd
á næstu vikum.
Eins og alltaf er raunin um verkefni
sem þessi, hefur þetta ferli frá árinu 2000
ekki alltaf verið dans á rósum. Engu að
síður hefur samstarfið við forráðamenn
Reykjavíkurborgar einkennst af einurð
og ríku trausti, sem skapast hefur milli
okkar og þeirra á þessum tíma. Til gam-
ans hef ég sagt frá því, að það hafa þrír
borgarstjórar, þrír borgarverkfræðingar
og þrír borgarlögmenn komið að þessu
verkefni af hálfu Reykjavíkurborgar.
Allir þessir aðilar hafa sýnt þessu verk-
efni áhuga og skilning, og af hálfu
borgarstjóranna fyrst Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, sem tók af skarið um, að
til samninga yrði gengið. Þá Þórólfur
Amason, sem er með Valsstreng í brjósti,
en er staddur erlendis í dag og bað
fyrir kæra kveðju til allra Valsmanna
með þökk fyrir samstarfið og síðast en
ekki síst Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
sem er hér með okkur í dag, en hún
hefur verið virkur þátttakandi í þessu
verkefni frá byrjun fyrst sem formað-
ur stjórnar íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar, síðar sem formaður
skipulagsnefndar og nú sem borgarstjóri.
Þá vil ég nota þetta tækifæri til þakka að
Ómari Einarssyni, framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs frábært sam-
starf, en hann hefur verið virkur þátt-
takandi fyrir hönd Reykjavíkurborgar í
þessu starfi allt frá byrjun.
42
Valsblaðið 2005