Valsblaðið - 01.05.2005, Síða 56
stEMEN*
SIEMEN5
\EMENS
IEMENS
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu 2005. Efsta röð'f.v.: Ragnheiður Jónsdóttir liðsstjóri, Rakel Logadóttir. Giidný Björk
Oðinsdóttir. Lattfey Jóhannsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Asta Árnadóttir. Dóra Man'a Lárusdóttir og Erla Sigurbjartsdóttir formað-
ttr kvennardðs. Miðröð f.v.: Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari, Olafttr Péturssón inarkmannsþjálfari, Elín Svavarsdóttir, Mádfríðttr
Erna Sigurðardóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Dóra Stejánsdóttir, Vilborg Guölaugsdóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Jóhannes
Már Marteinsson sjiíkraþjálfari og Unnar Steinn Bjarndal frathjcvœnidastjóri. Neðstu röðf.v.: Guðrtin María Porbjörnsdóttir. íris
Andrésdóttir fyrirliði, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Laufey Ólajsdóttir og Rui Bjarnadóttir. Fiwutr K.
FH en er uppalinn í Val. Ekki náðist að
verja Islandsmeistaratitilinn í ár, því
með tveimur tapleikjum gegn Breiðblik
Trommarinn Baldur Hrafnsson í góðum
ftling.
fór bikarinn í Kópavoginn. Það er mik-
ill hugur í leikmönnum og þjálfara liðs-
ins fyrir komandi tímabil að endurheimta
titilinn.
I ágúst var haldið til Kokkola í
Finnlandi þar sem stelpurnar tóku þátt
í fyrstu umferð Evrópukeppni félags-
liða. Mikil tilhlökkun var í hópnum og
fóru allir út með það að leiðarljósi að
njóta þess að taka þátt, og að sjálfsögðu
að sigra í leikjunum. Með mikilli bar-
áttu, vilja og samstöðu tókst stelpunum
að vinna riðilinn sinn og komast áfram í
aðra umferð.
Önnur umferð fór fram í Svíþjóð og
enn á ný sýndu stelpumar hvað í þeim
býr. Þær náðu öðru sæti og farseðli í 8
liða úrslit.
Næstu andstæðingar Vals voru
Evrópumeistararnir frá FFC Potsdam
í Þýskalandi. Valsliðið tapaði fyrir
Þjóðverjunum en fékk mikla athygli og
hrós fyrir frábæran árangur enda hefur
ekkert kvennalið á íslandi náð jafn
góðum árangri í þessari keppni.
Nýtt kvennaráð hefur verið skipað fyrir
komandi tímabil. Unnar Steinn Bjamdal
tekur að sér formennsku kvennaráðs
og með honum í ráðinu verða: Erla
Sigurbjartsdóttir, Asta Indriðadóttir, Eva
Halldórsdóttir, Orri og Ragnar Vignir.
2. fl. kvenna
I ár átti 2. fl.kv. að spila í fyrsta skipti í
B-deild íslandsmótsins, en sökum slakrar
þátttöku liða í B- deild var liðum fjölgað
í 12 ÍA- deild.
Þór Hinriksson var ráðinn þjálfari 2.fl.
kv. á haustdögum 2004, en sökum anna
lét hann af störfum í maí 2005. Soffía
Amundadóttir þáverandi þjálfari 3.fl.kv.
tók að sér þjálfun flokksins til loka tíma-
bils. Hún náði að hrista hópinn vel saman
og niðurstaðan var 5. sæti í Islandsmóti
sem telst góður árangur miðað við hve
flokkurinn var fámennur.
Theodór Sveinjónsson hefur nú tekið
þjálfun 2. fl. af Soffíu og hefur flokk-
urinn nú þegar fengið góðan liðstyrk frá
efnilegum stúlkum sem eiga eflaust eftir
að styrkja hópinn ásamt þeim leikmönn-
um sem fyrir em.
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokksráð karla var skipað þeim
Ótthari Edvardssyni og Braga Bragasyni
og óhætt að segja að þeir félagar hafi haft
í nógn að snúast því verkefnin voru æði
mörg en þeir félagar leystu sín mál far-
sællega og em þeim færðar þakkir fyrir.
Meistaraflokkur karla sigraði á flestum
þeim mótum sem liðið tók þátt í. íslands-
Valsblaðið 2005