Valsblaðið - 01.05.2005, Síða 63
Ferðasaga
Lang losta aðstaða sem- nokkur
okkar hefur komist I W\ VIO
Eftlrminnileg sefingaferð 3. Ilokks knattspyrnudrengja til Danmepkur
Strákunum þótti gott að sleikja ísinn. Frá vinstri:
Hlynur, Valdimar, Kristinn, Atli, Einar, Guðmundur
Steinn, Haraldur og Alexander.
Þann 4. júní síðastliðinn skelltum við
drengimir í 3. flokki okkur ásamt þjálfur-
unum, Gumma og Davíð og fararstjóran-
um Kjartani, í vikuferð til litla nágranna-
eyjaklasans Danmerkur. Ferðinni var
upphaflega heitið til Bretlands en hætt
var við þá ferð af óviðráðanlegum
ástæðum. Aætluð ferð til Bandaríkjanna
fór sömu leið og því varð Danmörk fyrir
valinu og við sáum ekki eftir því, enda
lifðum við eins og kóngar þá vikuna.
Frábær aðstaða
Við gistum í frábærri gistiaðstöðu í
íþróttamiðstöð í litlum bæ á Jótlandi og
æfðum á æfingasvæðinu þar en það er
líklega lang besta aðstaða sem nokkur
okkar hefur komist í tæri við. Vellimir
voru yfir tuttugu talsins, hver öðmm
betri, en óhætt er að líkja grasinu við
teppi, svo mjúkir og sléttir voru vellirn-
ir. Fæðið var heldur ekki af verri end-
anum, en við fengum hverja glæsimál-
tíðina á fætur annarri og var henni jafnan
fylgt eftir með góðri skál af ís í eftirrétt.
Vistarverurnar vom í samræmi við allt
annað á staðnum, í toppklassa en við
deildum fjórir og fjórir saman herbergj-
um. Það má með sanni segja að stað-
urinn væri ekki af verri endanum enda
heiðruðu engir aðrir en Afríkumeistarar
félagsliða, egypska stórliðið A1 Alhy,
okkur með nærvem sinni en
þeir vom þarna alla vikuna
ásamt okkur. Það var að vissu
leyti ákveðin upplifun fyrir
okkur að búa með mönnum frá
svo ólíkum menningarheimi og
komu okkur nokkrir siðir þeirra
og venjur okkur spánskt fyrir
Ksjónir. Sem dæmi má taka litla
þrælinn sem þeir höfðu með sér
en það er víst ekkert eðlilegra í
Afríku að félögin hafi yfir einu
stykki þræl að ráða til að sjá
um helstu verk, svo sem að sjá
um búninga og slíkt. Við, sem
megum að sjálfsögðu ekkert aumt sjá,
fómm að bjóða honum með í leiki, eins
og fótboltaspil og borðtennis, og þá kom
í Ijós að hann var bara hinn ágætasti karl
en hann og Kjartan fararstjóri urðu hinir
bestu vinir þegar leið á ferðina.
Leikir við dönsk lið
Við lékum þrjá leiki við þrjú góð, dönsk
lið og hefðu úrslitin mátt vera ögn hag-
stæðari en raun bar vitni. Fyrsta leikinn
lékum við gegn Danmerkurmeisturunum
í Silkiborg. Ljóst var frá upphafi að þetta
lið var geysilega öflugt, bæði tæknilega
og líkamlega en meginþorri liðsins skag-
aði hátt í tvo metrana. Þrátt fyrir ágætan
leik af okkar hálfu gekk ekki betur en
svo að leikurinn tapaðist 4-1. Næsti leik-
ur var gegn silfurliðinu frá því árið áður,
Vejle, en þar á bæ er aðal knattspymu-
akademía Danmerkur, ekki ósvipaðri
þeirri sem finna má í Ajax. Leikurinn
endaði 4-2 fyrir Danina, þrátt fyrir góðan
leik af okkar hálfu og fannst okkur við
eiga meira skilið út úr leiknum en tap. I
þriðja leiknum öttum við kappi við öllu
slakara lið og var sá leikur öllu auðveld-
ari fyrir vikið. Skemmst er frá því að
segja að leikurinn vannst næsta auðveld-
lega 7-2 og vilja undirritaðir kenna krón-
ískri gjafmildi, sem virtist hrjá okkur í
ferðinni, um mörkin tvö.
Bæjarferðin til Herning
Við gerðum heiðarlegar tilraunir til versl-
unarferða í bænum fyrstu dagana en ljóst
var að vegna smæðar var það heldur erf-
itt. Því var lagt upp í sérstaka bæjarferð
einn daginn til Herning en þar búa um
60.000 manns sem er nú ekki ýkja stórt
á danskan mælikvarða en miðað við
Blönduósinn sem við höfðunt búið í síð-
ustu daga var þetta eins og að koma til
New York. Sumir eyddu meira en aðrir
en flestir vorum við afskaplega veikir
fyrir sápukúlubyssum en ein slík í eigu
Steina var klárlega græja ferðarinnar.
Heimferðin
Við héldum heim á leið laugardaginn 11.
júní. Við tókum daginn snemma og var
ferðinni haldið til Billund. Þegar þang-
að var komið skiptist hópurinn í tvennt,
annars vegar þeir sem fóru í Lególand og
hins vegar þeir sem kíktu í bæinn. Um
kvöldið var kominn tími til að kveðja
Danmörku og flugum við heim kátir í
bragði eftir vel heppnaða ferð.
Samrýmdir strákar í Danmerkurferðinni.
Frá vinstri: Ellert, Erling, Guðmundur
Steinn, Haraldur, Einar, Atli og Kristinn.
Við viljum fyrir hönd 3. flokks, þakka
þjálfurunum Guðmundi og Davíð og
Kjartani fararstjóra, fyrir frábæra ferð
sem vonandi mun eiga sér einhverjar
sínar líkar í framtíðinni.
Einar Brynjarsson og
Pórður Sœvar Jónsson 3.flokki.
Valsblaðið 2005
63