Valsblaðið - 01.05.2005, Side 64
neistarar 2005. Aftari röð Jrá vinstrí: Lilja Bjiirk Hauksdóttir. Heióur Baldursdóttir
t(t Laufey, Kolbrún Franklín, Hildur Sif Pálmarsdóttir, Rebekka Rut Skúladónir. Katrín
Wsúst Jóhannsson þjálfarí, Karl Guðni Erlingsson adstoðarpjálfari. Freniri röð frá
iit\dri Dagur, Sigríður Jóna Gimnarsdðttir, Arna Grímsdóttir, Berglind íris Hansdt <nir,
niffjigttrlaug Rúna Rúnarsdóttir og Anna M. Gudmundsdóttir.
Enn ein kynslóðin
að homa upp i Val
Skýrsla handknattleiksdeildar Vals árið 2005
Á síðasta keppnistímabili var það
Islandsmeistaratitill 2. flokks karla sem
stendur upp úr þegar litið er yfir árang-
urinn í handboltanum. Strákarnir sigruðu
Víking í framlengdum úrslitaleik í Selja-
skólanum eftir að hafa verið mörgum
mörkum undir á kafla í leiknum. Fimm
af þessum íslandsmeisturum eru einn-
ig lykilmenn meistaraflokks karla í dag
sem er eins og staðan er núna á toppn-
um í DHL deildinni. Síðast þegar Valur
varð Islandsmeistari í 2. flokki karla
þá sigruðu Dagur Sigurðsson og Olaf-
ur Stefánsson og félagar lið KR einnig
í Seljaskólanum árið 1992 og þar áður
var það 1964-1965 kynslóðin sem síðast
varð meistari í 2. flokki karla. Þetta segir
okkur að leikmennirir okkar sem eru að
koma upp eiga eftir að bera upp merki
Vals á komandi árum.
Meistaraílokkur karla
Meistaraflokkur karla datt út í undanúr-
slitum íslandsmótsins 2004-2005 og var
því 3.-4. tjórða sætið staðreynd en dreng-
irnir enduðu í 4. sæti Islandsmótsins og
sigruðu HK í 8-liða úrslitum en Hauk-
arnir reyndust of sterkir og á endanum
stóðu þeir uppi sem íslandsmeistarar.
Mikil skelfing greip um sig í herbúðum
Vals að loknu keppnistímabilinu og virt-
ust menn hræddir við að leika í Höllinni
að ári og margt annað virtist hrjá leik-
menn meistaraflokksins. Svo fór að fyr-
irliði liðsins, Heimir Örn Ámason, fór
í Fylki ásamt Ásbimi Stefánssyni, Vil-
hjálmur Ingi Halldórsson fór til Skjem í
Danmörku og Friðrik Brendan Þorvalds-
son fór til Þórs á Akureyri. Þessum leik-
mönnum er þakkað framlag þeirra í þágu
Vals. Einar Öm Guðmundsson var svo í
64
Valsblaðið 2005