Valsblaðið - 01.05.2005, Page 68
íslandsmeistarar í2.flokki karla 2005 íhandbolta. Efri röö frá vinstri: Hörður
Gunnarsson varaformaöur félagsins, Haraldur Daði Ragnarsson formaður hand-
knattleiksdeildar Vals, Einar Gunnarsson, Kristján Karlsson, Egill Sigurösson, Patrik
Þorvaldsson, Ingvar Arnason, Orri Freyr Gíslason, Daöi Baidur Ottósson, Sigurjón
Kœrnested, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Arni Sigfússon þjálfari flokksins og
Jóhannes Lange aðstoðarþjálfari. Neðri röð frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Darri
Egilsson, Sveinn Skorri Höskuldsson, Pálmar Pétursson, Einar Örn Guðmundsson,
Elvar Friðriksson, Fannar Þór Friðgeirsson og Birkir Marínósson.
Fólkið í kring
Það var hræðsla í handboltanum að fara
í nýtt íþróttahús og missa heimavöll-
inn góða en fólkið í kringum deildina
hefur unnið þrekvirki. Fyrir tímabilið var
ákveðið að stofna ýmis ráð sem áttu að
taka að sér ýmis verkefni og dreifa átti
ábyrgðinni. Ráðin hafa farið ágætlega af
stað en þó þarf að fjölga í flestum þeirra
til að starfið verði enn betra og árangurs-
ríkara. Nýr formaður tók við starfinu í
ágúst og heitir Jóhann Þórarinsson. Hann
lék í yngri flokkunum með leikmönnum
eins og Degi Sigurðssyni og Ólafi Stef-
ánssyni. Jóhann hefur gert frábæra hluti
og með honum kom inn Bjarni Gunnar
Stefánsson og hafa þeir leitt þetta erfiða
starf mjög vel með dyggri aðstoð Gunn-
ars Möllers, formanns meistaraflokksráðs
karla, og Stefáns Karlssonar, formanns
meistaraflokks kvenna. Líklega hefur
deildin aldrei verið í jafn góðum málum
hvað mannskap varðar og er það kannski
ein af skýringum góðs árangurs í meist-
araflokkum félagsins og yngri flokkum.
Ekki má gleyma því frábæra heima-
leikjaráði sem hefur gert Laugardals-
höllina að besta heimavelli í deildinni
og þeim glæsilegasta og aldeilis slegið á
allar gagnrýnisraddir sem efuðust um að
spila þar. Ahorfendur hafa einnig skipt
verulegu máli á heimaleikjunum og eru
báðir meistaraflokkarnir ákaflega þakk-
látir hinum dyggu stuðningsmönnum sem
mæta ávallt að styðja við bakið á þeim.
Sérstaklega ber að tala um trommuleik-
arana sem með „salsataktinum" gera það
að verkum að það er ánægjulegur hávaði
á pöllunum okkar.
í lokin ber að þakka Haraldi Daða
Ragnarssyni hans frábæru ár sem for-
maður deildarinnar en Daði stundar nú
nám í Danmerku. Sem dæmi um áhuga
hans kom hann til Finnlands að fylgjast
með leikjunum gegn Sjundea IF. Har-
aldur Daði vann mjög gott starf, er mikill
Valsari og á án efa eftir að koma aftur í
okkar raðir. Takk fyrir okkur, Daði.
Fyrir hönd sigursœlasta félags í
handboltasögunni,
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari
meistaraflokks karla.
Elvar Friðriksson brunar í
gegmtm vörnina.
mm
_
Finnur K.
68
Valsblaðið 2005