Valsblaðið - 01.05.2005, Page 71
íþróttaskóli fvrin ..
3-5 ara born
í sumar kom upp hugmynd þess efnis að
stofnaður yrði íþróttaskóli í nafni Vals
fyrir 3-5 ára böm. Þrátt fyrir báglegan
húsakost og þétt setnar tímatöflur tókst
okkur að losa um einn tíma í viku fyrir
þessa starfsemi og var henni því ýtt af
stað. Guðni Hjörvar Jónsson, íþrótta-
fræðingur, hafði umsjón með íþrótta-
skólanum og alls voru skráð 15 böm í
íþróttaskólann sem fram fór í íþróttahúsi
Hlíðaskóla. Markmið íþróttaskólans eru
að bjóða börnum upp á hreyfikennslu
með áherslu á samhæfingu og fjölbreytt-
ar hreyfingar í formi leikja og hvers kyns
hreyfiþrauta og efla þannig almennan
lfkams- og hreyfiþroska bamanna. Með
íþróttaskólanum lækkum við þann aldur
sem böm geta verið virkir félagar í starf-
semi Vals og óhætt er að segja að Valur
sé nú aðalfélagið í hugum og hjörtum
flestra þessara íþróttamanna framtíðar-
innar.
íþróttaskólinn gekk mjög vel þessa
fyrstu starfsönn og mun starfsemin án
nokkurs vafa halda velli í framtíðinni.
Rétt er að þakka starfsfólki Hlíðaskóla
fyrir lán á áhöldum og liðleika í okkar
garð.
Pétur Veigar Pétursson, íþróttafulltrúi
og skólastjóri íþróttaskólans.
oid gins vaiur PollaiDÓtsmeistarar í
IjÓnynjUdeildinni 2005
Síðastliðið sumar var árlegt Pollamót
Þórs haldið á Akureyri. Gamlar kemp-
ur Vals úr kvennaknattspymu, Old girls
Valur vom mættar til leiks og gerðu sér
lítið fyrir og unnu alla sjö leiki sína með
yfirburðum og enduðu með markatöluna
26-3. Mörkin 3 sem þær fengu á sig voru
öll úr vítakeppni. Frábær árangur hjá
stelpunum. Einnig áttu stelpumar í Val
markahæsta leikmann Ijónynjudeildar,
Soffíu Ámundadóttur með 9 mörk.
Leikmenn liðsins vom:
Sirrý Hrönn Haraldsdóttir
Soffía Ámundadóttir
Guðbjörg Ósk Ragnarsdóttir
Ragnheiður Víkingsdóttir
Sólrún Ástvaldsdóttir
Sigrún Cora Barker
Arney Magnúsdóttir
Bryndís Valsdóttir
Ragnhildur Skúladóttir
Védfs Ármannsdóttir
Aö þessu sinni standa allar deildir Vals aðA
flugeldasölunni og vérður hagnaðúrinn pþtaðiir; þ
til endurnýjunnar á tækjum í tækjasal féfagsins//
sem mun nýtast öllum iðkendum Vals.
Valsmenn verslum aramopa-/
flugeldana á Hliðarenda og
gerum þannig gott starf en
Flugeldasalan er opin fra:
29. desember frá kl.14.00-22.OD
30. desember frá kl. 14.00-22.00
31. desember frá kl. 09.00-16.00