Valsblaðið - 01.05.2005, Page 80
Mikilvægt að hlúa að
ungvioinu efarangur a ao nast
Viðtal við Eggert Maríuson þjálfara KKD Vals
Samningur handsalaður. Gunnar Zoéga formaður körfuknattleiksdeildar býður Eggert
velkominn til starfa hjá Val.
Á þessu keppnistímabili hefur meist-
araflokkslið Vals í körfuknattleik spilað
undir stjóm nýs þjálfara, Eggerts Mar-
íusonar. Stjóm körfuknattleiksdeildar
ákvað í sumar að ráða Eggert til starfa
enda hefur hann getið sér mjög gott orð
sem þjálfari undanfarin ár í efstu deild.
Könfuknattleiksfenill Eggerts
Eggert hóf körfuknattleiksferilinn sem
leikmaður hjá IR ungur að ámm. „Eg hóf
ferlilinn í Breiðholtinu hjá Sigvalda sem
var mjög duglegur að smala inn krökk-
um. Þar spilaði ég upp alla yngri flokk-
ana og í meistaraflokki. Það má segja að
allur ferillinn hafi verið í ÍR fyrir utan
eitt ár á Akranesi og annað í KR.“
Þjálfaraferill
Eftir árið hjá KR gerðist Eggert spil-
andi þjálfari í annarri deildinni hjá Fjölni
þar sem hann var í eitt ár. Eftir það tók
þjálfun algjörlega við og næsta verkefni
Eggerts var að koma Breiðablik í efstu
deild, sem tókst á fyrsta ári. Breiðablik
stóð sig mjög vel í úrvalsdeildinni og
lenti í skemmtilegri rimmu við Njarðvík í
úrslitakeppninni. „Við unnum einn leik“,
segir Eggert. „Við settum Njarðvík í tölu-
verð vandræði en þeir sigruðu nú samt 2-
1. Okkar lykilmaður á þessum tíma var
Kenneth nokkur Richards sem einmitt
gerði garðinn frægan hjá Valsmönnum,
mjög skemmtilegur leikmaður."
Eftir þessa sjálfskipuðu útlegð úr IR
sneri Eggert heim og þjálfaði meist-
araflokkslið ÍR í þrjú keppnistímabil.
Spurður um árin þrjú er Eggert fljótur til
svara. „Þetta gekk ágætlega en hápunkt-
urinn á þeim tíma hefur samt verið þegar
við slógum út Njarðvík í átta liða úrslit-
um í úrslitakeppninni síðastliðið vor.
Ekki nóg með það heldur sigruðum við
síðan Keflavík í fyrsta leiknum í und-
anúrslitum. Eftir það settu Keflvíkingar
reyndar í 4. gír og rúlluðu yfir okkur en
eftir stóð skemmtileg og lærdómsrík
reynsla.“
)
Metnaðarfullur þjálfari
Þegar Valsmenn höfðu samband við
Eggert í sumar fannst Eggerti kominn
tími til að taka að sér nýtt verkefni, enda
þjálfað ÍR í þrjú ár og þjálfað marga af
yngri leikmönnum liðsins auk þess að
hafa spilað með þeim eldri, s.s. eins og
Eiríki Önundarsyni. Nú skyldi prófa
eitthvað nýtt. „Ég vissi nú svo sem ekki
mikið um Valsliðið annað en það sem
ég hafði séð þegar við spiluðum við þá
í Reykjavíkurmótum og svoleiðisr, en
þegar stjómin ræddi við mig var mikill
hugur í þeim að koma liðinu upp. Þannig
voru markmiðin strax ljós og væntingar
um árangur mikill í upphafi. Ég hef alltaf
miklar væntingar til sjálfs mín og minna
leikmanna svo þetta passaði allt saman.
Sá dómur hvernig til hefur tekist hefur
þó ekki fallið enn því keppnistímabilið
er einungis hálfnað, en við erum í þokka-
legum málum. Við eigum eftir að fá
toppliðin heim eftir áramót og því getur
allt gerst.“
Liðið að slípast saman
Fyrsti alvöru leikur Eggerts sem þjálfara
hjá Val var í Reykavíkurmótinu á móti
KR. Liðið steinlá fyrir KR-ingum með
80 stiga mun. Eggerti var samt ekkert
brugðið. „Liðið hefur verið ört vaxandi
eftir þetta tap í haust og mikið vatn runn-
ið til sjávar. Við byrjuðum alveg á fyrstu
blaðsíðu því það var nýr þjálfari og ein-
ungis tveir leikmenn frá síðasta tímabili
enn í liðinu. Við erum því búnir að vera
að slípa saman algjörlega nýjan mann-
skap meðan toppliðin Tindastóll og Þór
úr Þorlákshöfn eru búin að vera með
sína kjama í tvö til þrjú ár. Ég er því bara
mjög sáttur við hvert við erum komnir
80
Valsblaðið 2005