Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 88
íþróttaskóli fyrir 6 ára
Líkt og undanfarin ár hefur Valur í sam-
starfi við hverfisskólana og íþróttabanda-
lag Reykjavíkur haldið úti íþróttaskóla
fyrir börn í 1. bekk á félagssvæði Vals.
Knattspyrnufélagið Valur er rekstraraðili
íþróttaskólanna sem eru þrír og eru starf-
ræktir í Austurbæjarskóla, Háteigsskóla
og Hlíðaskóla og í hann eru skráð yfir
hundrað börn í vetur. Markmið íþrótta-
skólans eru í meginatriðum að auka
hreyfingu bamanna og koma þannig
til móts við almenna hreyfiþörf þeirra.
Með skipulegu starfi er stefnt að því að
efla almennan líkams- og hreyfiþroska
bamanna og stuðla að iþróttalegu upp-
eldi og þátttöku í íþróttum án áherslu á
keppni eða árangur, auk þess að kynna
Val sem íþróttafélag og ala upp gall-
harða Valsara. Við viljum að börnin
kynnist íþróttum á jákvæðan og upp-
byggilegan hátt og leggjum áherslu á þær
íþróttagreinar sem stundaðar eru í Val.
Þær greinar eru settar fram
að mestu leyti í leikjaformi
en þannig skapast grunnur
fyrir kennslu í grunntækni
íþróttanna. Umsjón með
öllum tímum hafa mennt-
aðir íþróttakennarar og því
má segja að fagmennskan
sé í fyrirrúmi.
Með iþróttaskólanum
kemur Valur til móts við
heimilin í hverfinu, böm-
in og foreldrana og kemur
þannig á hagkvæman hátt
til móts við félags- og tóm-
stundaþörf barnanna. Þess
má geta að íþróttaskóli fyrir
sex ára börn er þeim að
kostnaðarlausu.
Frá fjölmennri og vel heppnaðri lokahátíð íþróttaskóla
Vals vorið 2005.
Pe'tur Veigar Pétursson, íþróttafulltrúi
og skólastjóri íþróttaskóla Vals.
101 er getraunanumer Vals
Þurfum aö virkja þessa tekjulind mlklu betur
Á hverjum laugardegi frá kl. 11.00-
13.30 er opinn svokallaður húspottur í
Valsheimilinu. Getraunanefnd félagsins
hefur umsjón með þessu skemmtilega
félagsstarfi. Þangað mæta ýmsir
Valsarar vikulega til að tippa, þ.e. freista
gæfunnar í getraunum. Getraunanefndin
hvetur Valsmenn að mæta á Hlíðarenda
á laugardögum og freista gæfunnar, en
hægt er að taka þátt í enska boltanum
eða þeim ítalska. Enski boltinn er alltaf
vinsælastur.
Allir stuðningsmenn Vals sem kaupa
sér getraunaseðil, hvort heldur sem er
í Valsheimilinu eða annars staðar eru
hvattir til að merkja seðilinn með 101
sem er getraunanúmer Vals, en félagið
fær umtalsverðar tekjur árlega af getraun-
um. Samkvæmt upplýsingum frá getraun-
um þá eru Valsmenn yfirleitt með milli 2-
3% af öllum seldum seðlum. Fyrir áratug
var Valur langtekjuhæsta félagið með um
11% af allri sölu. Það er athyglisvert að
Sindri á Homafirði er yfirleitt með hærra
hlutfall seldra seðla, en
Sindramenn hafa rekið
mikinn áróður fyrir get-
raunanúmeri félagsins.
Valsblaðið hvetur alla
Valsmenn að muna eftir
getraunanúmerinu, 101
og taka þátt í húspotti
félagsins á laugardög-
um. Um leið og stuðn-
ingsmenn Vals leggja
sitt af mörkum til að
styrkja félagið, er hægt
að efla félagsandann
og jafnframt fylgjast
vikulega með uppbygg-
ingu mannvirkja að Hlíðarenda. Loks má
ekki gleyma því að þeir getspökustu geta
unnið stórar upphæðir í getraunum.
88
Valsblaðið 2005